A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
13.06.2016 - 13:13 | Vestfirska forlagið,Sæmundur Þorvaldsson,Skógræktarfélagið og Höfrungur.

Þingeyringar athugið ! 17. júní 2016 - Í hlíðinni ofan Þingeyrar (kl 09:30 til 11:00)

Stjarnan á myndinni sýnir hvar gróðursetningin fer fram, ofan við hlöðuna hans Jónasar heitins Ólafssonar.
Stjarnan á myndinni sýnir hvar gróðursetningin fer fram, ofan við hlöðuna hans Jónasar heitins Ólafssonar.
« 1 af 2 »

Eins og oft áður standa Skógræktarfélag Dýrafjarðar og íþróttafélagið Höfrungur fyrir smá viðburði að morgni þjóðhátíardagsins.

Lengi hefur verkefnið verið að huga að og bæta við gróðri umhverfis Íþróttamiðstöðina og tjaldstæðið á Þingeyri, en nú ber nýrra við.

Vinabær Ísafjarðarbæjar Kaufering í suður Bæjaralandi gefur í ár Ísafjarðarbæ allnokkurn fjölda lauftrjáa sem upprunnin eru í hlíðum bæverskra alpa. Hluti þessara trjáa eiga að fara í frjósama og skjólsæla hlíðina ofan við Aðalstrætið á Þingeyri og nú vantar okkur fólk til að koma þeim skikkanlega í jörð. Búið er að taka holur fyrir plönturnar og húsdýraáburður er til staðar á svæðinu.

Vinsamlega hafið með ykkur skóflur og fötur og ein til tvær léttar hjólbörur kæmu sér vel.

Gróðursetning hefst háf-tíu og gert ráð fyrir að verkið taki eina til eina og hálfa klukkustund. Trjátegundirnar sem hér um ræðir eru nýjar á þessu svæði og ekki víst að þær muni allar vaxa og dafna, en eins og þið hafið tekið eftir er nú kominn talsverður skógur á svæðinu og þar með komið gott skjól víða og jarðvegur er góður. Tegundirnar eru: hlynur, askur, linditré og beyki.

Stjarnan á myndinni sýnir hvar gróðursetningin fer fram, ofan við hlöðuna hans Jónasar heitins Ólafssonar.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31