Mikil ánægja með nýjan forseta
Andrúmsloftið við þinghúsið var þægilegt og veður gott; logn og hlýtt.
Mikil ánægja virtist með nýjan forseta....
Meira
Vestfirska forlagið sendir öllum verzlunarmönnum, nær og fjær, baráttukveðjur með ósk um að allt megi ganga þeim í haginn.
Og er nú rétt að rifja upp hvað Jón Sigurðsson sagði um verslunina 1866:
„Þú heldur að einhver svelgi okkur. Látum þá alla svelgja okkur í þeim skilningi, að þeir eigi við okkur kaup og viðskipti. Frelsið er ekki í því að lifa einn og sér og eiga ekki viðskipti við neinn.“
(Jón Sigurðsson í ræðu og riti)
...Í dag (gær - 30. júlí 2016) hefði faðir minn, Skarphéðinn Össurarson, orðið hundrað ára. Hann bjó yfir frægum, smitandi hlátri, og kristaltærum tenór. Hann móðgaðist þegar hann söng í kirkjukór Óháða safnaðarins, og var spurður hvort hann væri fyrsti tenór. „Nei, ég er hetjutenór!“
Pabbi skrifaði og lék revíur suður með sjó með stórleikurum einsog Helga Skúlasyni, Gunnari Eyjólfssyni, Kristni Reyr, Ólafi biskup, að ógleymdum stórvini sínum, Helga S. Jónssyni, formanni þjóðernisjafnaðarmanna. Undir þá stjórnmálastefnu var hann meira en hallur „áður en Adolf gekk af göflunum.“ Hann kvæntist seint, lifði hátt, var lífsglaður gleðimaður án þess að verða drykkjumaður úr hófi, og sagði stórkostlegar gleðisögur af þessum frægu lífskúnstnerum Keflavíkur. Seinna lék hann eitt aðalhlutverkið í einni af fyrstu alvöru kvikmyndum Íslands, Bakkabræðrum. Í Keflavík bjó þá og alltaf síðan Bjarni Össurarson, bróðir hans, og frægur músíkant. Þegar amma mín dó frá honum, langt um aldur fram, fót hann fótgangandi einn síns liðs, sextán ára gamall, alla leið úr Keldudal í Dýrafirði suður til Keflavíkur til Bjarna bróður síns.
...“Suma vantar alltaf allt, en aðra skortir aldrei neitt, en samt eru þeir jafnilla staddir. Það er eins og sumir menn séu jafnfátækir hvað mikla peninga sem þeir eiga.”
Svo sagði Steinn Steinarr í viðtali við Matthías Johannessen í M Samtöl V, en í því verki má segja að sé nokkurs konar Íslandssaga í hnotskurn á 19. og 20. öld. Hér hittir skáldið naglann á höfuðið sem oftar og er mikið íhugunarefni fyrir þjóð sem veit ekki sitt rjúkandi ráð, en vantar alltaf allt sama hvað hún eignast mikið. Í umræddu verki Matthíasar, sem allir ættu að lesa, er samankomin í fimm bókum þjóðarsálin sjálf. Þar ræðir hann við fólk sem kynntist baráttunni við allsleysið vel. Í umræddum bókum eru ekki bara samtöl Matthíasar við Íslendinga. Þar eru einnig mörg samtöl við heimsfræga menn. Til dæmis átti hann viðtal við Louis Armstrong 1965.
Grípum aðeins niður í það:
Hann bjó hjá ömmu sinni og afa uppá Bala. Við hittumst fyrst í bíói á Þingeyri, var það "Síðasti bærinn í dalnum"? Sátum saman á fremsta bekk. Jafnaldra. Fám dögum seinna snupraði amma hans móður mína fyrir að hafa smitað hann af rauðum hundum. Það man ég ekki lengur; man hins vegar munnlega kennslu hans í marhnútsveiðum á Þingeyrarbryggju, hann hélt sig sjaldan til hlés í strákahópnum, rauðbirkinn, þéttur og píreygður.
Varð innanbúðar í KD fermingarsumarið. Bar sig sem hefði hann verið þar í áratugi, skammaði íhaldið og brúkaði stórum meiri munn en Einsi í Laufási - flottasti afgreiðslumaður sem ég hef enn kynnst ...
...Friðrik 8., konungur Íslands og Danmerkur, siglir frá Kaupmannahöfn þann 21. júlí 1907 og kemur til Íslands þann 30. júlí og ferðast um Suðurland auk þess að fara til Flateyrar, Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar.
Heimsókn Friðriks VIII. Danakonungs til Íslands um sumarið 1907 er merkur atburður í Íslandssögunni. Alþingismannaförin til Danmerkur árið áður og vel heppnuð Íslandsferð konungs og ríkisþingmanna jók gagnkvæm kynni ráðamanna og skýrði sameiginlega hagsmuni. Það má segja að með þessum tveimur heimsóknum hafi hafist samningaferli sem síðar átti eftir að leiða til fullveldis Íslands 1918.
...