A A A
  • 1965 - Guðlaug Rögnvaldsdóttir
13.04.2017 - 12:49 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Merkir Íslendingar - Rúnar Júlíusson

Hjónin Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir á góðri stund.
Hjónin Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir á góðri stund.
Guðmundur Rúnar Júlíusson, hljómlistarmaður og útgefandi, fæddist í Keflavík 13. apríl 1945 og átti þar heima alla tíð. Hann hefði ekki viljað að hér stæði að hann hefði átt heima í Reykjanesbæ. Hann var Keflvíkingur og mjög mótfallinn því að fæðingarbær hans væri endurskírður af skrifstofublókum inni í Reykjavík.

Rúnar var sonur Júlíusar Eggertssonar málarameistara og Guðrúnar Bergmann Stefánsdóttur.


Guðrún var systir Jóhanns Bergmann, föður Árna Bergmann rithöfundar. Hún var dóttir Stefáns Bergmann ljósmyndara, bróður Jónínu, ömmu Guðlaugs Bergmann í Karnabæ.


Eftirlifandi eiginkona Rúnars er María Baldursdóttir söngkona og eignuðust þau tvo syni en María er systir Þóris Baldurssonar tónlistarmanns.


Rúnar var í hópi þekktustu popptónlistarmanna landsins á síðari helmingi síðustu aldar og í fjölmennum hópi popptónlistarmanna sem komu frá Bítlabænum Keflavík um og eftir 1963.

...
Meira
13.04.2017 - 10:30 | Vestfirska forlagið,Komedia,Elfar Logi Hannesson,Björn Ingi Bjarnason

Gísli á Uppsölum Þingeyri á skírdag - 13. apríl 2017

Gísli hefur þegar verið sýndur 40 sinnum.
Gísli hefur þegar verið sýndur 40 sinnum.

Hið vinsæla og áhrifamikla leikrit Gísli á Uppsölum verður sýnt á Þingeyri á skírdag, fimmtudaginn 13. apríl kl. 20.00. Miðasala er hafin og er í blússandi gangi í síma: 891 7025. Miðinn kostar litlar 4000.- kr. Aðeins verður um þessa einu sýningu á ræða á Þingeyri. Því daginn eftir, á föstudaginn langa, verður Gísli farinn yfir heiðarnar tvær sem aðskilja norður og suðursvæði Vestfjarða. Alla leið á Birkimel á Barðaströnd hvar Gísli verður á fjölunum á hinum langa föstudegi. 


Leiksýningin um Gísla á Uppsölum hefur notið gífurlegra vinsælda og aðsóknar.

...
Meira
13.04.2017 - 09:39 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

13. apríl 1844 - Jón Sigurðsson kosinn á Alþingi

Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Jón Sigurðsson (1811 - 1879).

Jón Sigurðsson var kosinn á þing í fyrsta sinn, á kjörfundi sem haldinn var í kirkjunni á Ísafirði þann 13. apríl 1844. 
Hann hlaut 50 atkvæði af 52 sem er 96.2%.


Alþingi kom saman 1. júlí 1845 og var Jón yngstur þingmanna, 34 ára. Hann sat á þingi til 1879 og var oft þingforseti.


Varaþingmaður Jón Sigurðssonar í kosningunum 1844 var kosinn Magnús Einarsson á Hvilft í Önundarfirði. Hann var helsti stuðningsmaður Jóns vestra og í raun fyrsti önfirski kosningasmalinn sem sögur fara af og sýndi með kjöri Jóns mikilvægi kosningasmalanna. Jón  Sigurðsson hafði búið í Kaupmannahöfn í rúman áratug þegar hann bauð sig fram til Alþingis og hafði ekki tök á kosningavinnu á vettvangi í Vestur-Ísafjarðarsýslu. 

...
Meira
13.04.2017 - 07:40 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Leggja milljónir í gullleit - Eru bjartsýnir á að finna gull

Þingeyrarvefurinn greindi frá væntanlegri gullleit í Arnarfirði þan 1. apríl sl.  Flestir töldu þetta vera aprílgabb. En - ekki skrökvar Þingeyrarvefurinn-
Þingeyrarvefurinn greindi frá væntanlegri gullleit í Arnarfirði þan 1. apríl sl. Flestir töldu þetta vera aprílgabb. En - ekki skrökvar Þingeyrarvefurinn-

• Hafa áform um leit að gulli víða um land næstu tvö ár 
• Nýtt fjármagn í verkefnið frá Kanada 
• Þormóðsdalur talinn geta veitt mikilvægar upplýsingar


„Ég er nokkuð bjartsýnn á að á endanum náum við gulli upp úr jörðinni, hvort sem það verður í Þormóðsdal eða annars staðar á landinu,“ segir Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, stjórnarformaður Iceland Resources ehf. (IR) sem leitar að vinnanlegu gulli hér á landi. Kanadíska fyrirtækið St-Georges Platinum and Base Metals Ltd hefur nú yfirtekið fyrirtækið og hleypir það sterkari fjárhagslegum stoðum undir verkefnin sem það hefur unnið að.


Nýtt dótturfélag St-Georges Platinum, sem annast mun starfsemi Iceland Resources, verður að 60% í eigu Kanadamannanna og að 40% í eigu fyrrverandi hluthafa sem eru bæði íslenskir og erlendir.

...
Meira
13.04.2017 - 07:20 | Þingeyrarkirkja,Hildur Inga Rúnarsdóttir

Helgihald í Dymbilviku og á páskum í Þingeyrarprestakalli

Þingeyrarkirkja.
Þingeyrarkirkja.
Skírdagur 13. apríl kl. 20:00
Kyrrðarstund í Þingeyrarkirkju kl. 20:00
Stutt helgistund með altarisgöngu þar sem bæn og kyrrð eru í fyrirrúmi og sungnir verða m.a. Taizésálmar.

Föstudagurinn langi 14. apríl
Helgiganga frá Söndum til Þingeyrar kl. 11:00
Gangan hefst á bæanastund á grunni Sandakirkju og þaðan verður gengið til Þingeyrar. Að göngu lokinni verður göngufólki boðið að þiggja súpu í Stefánsbúð.
...
Meira
13.04.2017 - 07:12 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

NÝIR EIGENDUR AÐ -VAGNINUM Á FLATEYRI-

Vagninn á Flateyri. Ljósm.: BIB
Vagninn á Flateyri. Ljósm.: BIB

Ein frægasta krá landsins, Vagninn á Flateyri, hefur nú fengið nýja eigendur. Hinir nýju eigendur eru þrenn pör sem öll eiga hús á Flateyri þar sem þau dvelja hluta úr ári. Eigendur Vagnsins eru þau Sindri Páll Kjartansson og Arnþrúður Dögg Sigurðardóttir, Hálfdán Pedersen og Sara Jónsdóttir ásamt Geir Magnússyni og Ragnheiði Ólafsdóttir.


Fólk hefur komið saman og skemmt sér á Vagninum allt frá því árla á níunda áratug síðustu aldar og er staðurinn hlaðinn minningum í hólf og gólf. Segjast hinir nýju eigendur að þeim þyki afar vænt um eyrina og stefna þau á endurbætur og uppbyggingu á Vagninum með tíð og tíma, en áherslan hið fyrsta verði á að fá slátt í þetta hjarta Flateyrar með ýmsum hætti.

...
Meira
12.04.2017 - 08:01 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps 2016: - Mikið var hlegið á fundinum!

Og enn er það fræga félag Búnaðarfélag Auðkúluhrepps á dagskrá!


Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps var haldinn í Mjólkárvirkjun 7. apríl 2016. Fundarstörf gengu vel fyrir sig og voru menn bara kátir að vanda. Formaður félagsins, Hreinn Þórðarson, stjórnaði fundinum á sinn ljúfa hátt. Ályktanir nokkrar voru samþykktar til að leggja fyrir landsmenn. Undir liðnum önnur mál kom í ljós að mönnum liggur ýmislegt á hjarta í Auðkúluhreppi hinum forna. Ekki var það nú allt fært til bókar en þó sumt og skal nú stiklað á stóru í þeim efnum.

...
Meira
12.04.2017 - 07:54 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Fólk fær útrás í hlátrinum með Guðna og Jóhannesi

„Það er létt yfir salnum og mikið hlegið,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra. Hann og Jóhannes Kristjánsson fara nú um landið með skemmtidagskrána Eftirherman og orginalinn og á laugardagskvöld voru þeir félagar í Salnum í Kópavogi. Það var 6. skemmtun þeirra og hafa allar verið vel sóttar.


Í kvöld, miðvikudagskvöld, 12. apríl, verða þessi gleðimenn aftur í Salnum, svo og að kvöldi sumardagsins fyrsta og svo 27. apríl. Einnig eru fleiri sýningar í Landnámssetrinu í Borgarnesi á dagskrá og meira eftir atvikum.

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31