Undirritun vegna Dýrafjarðarganga frestað
Undirritun samninga við aðalverktaka Dýrafjarðarganga hefur verið frestað vegna ófærðar.
Til stóð að samningar Vegagerðarinnar við Metrostav a.s. frá Tékklandi og Íslenska verktakann Suðurverk um framkvæmdir á Dýrafjarðargöngum yrðu undirritaðir á Hrafnseyri í Arnarfirði klukkan tvö í dag.
Undanfarna daga hefur hins vegar snjóað mikið í fjöll á Vestfjörðum og Hrafnseyrarheiði, á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar er ófær og því ekki hægt að komast á Hrafnseyri. Það er einmitt heiðin sem að Dýrafjarðargöng koma til með að leysa af hólmi.
Gleðilegt sumar
...Meira