Spurning sem fólk þarf að velta fyrir sér:- Hvað gerist þegar samfélag molnar innanfrá?
Skoðum það helsta:...
Meira
Foreldrar hans voru Ólöf Björnsdóttir, f. 1911, d. 1976, og Tómas Nissen, f. 1903, d. 1962. Stjúpfaðir Bóas Jónatansson, f. 1905, d. 1977. Systkini Erlings eru: Guðrún, f. 1939, Sigurgeir, f. 1948, Lóa Björk, f. 1951, d. 1974.
Erling kvæntist Ingibjörgu Magnúsdóttur frá Ketilsstöðum í Hvammssveit, f. 9. mars 1932, d. 25. júlí 2009.
Börn þeirra eru:
Illugi Gunnarsson, fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra, verður á morgun gerður að stjórnarformanni Byggðstofnunar á ársfundi stofnunarinnar sem haldinn verður í Skagafirði. Þetta fullyrti Fréttablaðið í gær.
Segir blaðið að Jón Gunnarsson samgönguráðherra vilji skipta út Herdísi Á. Sæmundsdóttur núverandi stjórnarformanni fyrir Illuga. Herdís var skipuð í apríl árið 2015 af Sigurði Inga Jóhannssyni formanni Framsóknarflokksins, sem var ráðherra byggðamála á síðasta kjörtímabili.
Byggðastofnun veitir lán til staða á landinu sem markaðurinn telur sig ekki getað lánað til, skilaði stofnunin 150 milljón króna hagnaði í fyrra. Voru þá árslaun stjórnarformanns 2,4 milljónir króna.
...Ásgeir Ásgeirsson hafði verið þingmaður lengi áður en hann var kjörinn forseti 1952. Fyrst sem framsóknarmaður, síðan óháður og síðast bauð hann sig fram sem alþýðuflokksmaður. Svo var það eitt sinn, þegar hann var í Alþýðuflokknum, að þau hjónin, hann og frú Dóra Þórhallsdóttir, voru á ferðalagi um kjördæmi Ásgeirs, Vestur-Ísafjarðarsýslu.
Frú Dóra sagði svo frá, að þau hefðu komið í Mosdal í Arnarfirði. Þau hittu þar m. a. Guðmund bónda Jóhannsson, Gvend á Horni. Spurði Ásgeir karl hvort hann myndi ekki kjósa hann í komandi kosningum. “Jú, jú, Ásgeir minn,” sagði Gvendur. “Ætli maður fylgi þér ekki hringinn!”
...Dagur bókarinnar er 23. apríl en Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) átti frumkvæðið að því að gera þennan dag að alþjóðadegi bóka.
Ástæðan fyrir valinu er að 23. apríl, messa heilags Georgs, hefur um langa hríð verið dagur bókarinnar í Katalóníu og bóksalar Barcelóna jafnan gefið rós eða önnur blóm með hverri seldri bók þennan dag.
Svo vill til að þessi dagur er einnig fæðingar- eða dánardagur nokkurra þekktra rithöfunda. Dagurinn er fæðingardagur Halldórs Laxness 1902 (lést 8. febrúar 1998) og dánardagur Williams Shakespeare 1623 og Miguel de Cervantes 1616 sem var spænskur leikritahöfundur og ljóðskáld.
Markmið UNESCO með alþjóðadegi bókarinnar er að hvetja fólk og þá einkum ungt fólk til að lesa meira og kynna sér verk þeirra fjölmörgu höfunda sem hafa auðgað líf mannkyns um aldir.
Vestfirska forlagið sendir bókafólki bestu kveðjur í tilefni dagsins og þakkar sínu bókafólki sem og öðrum farsæla samleið á þeim tæpa aldarfjórðungi sem Vestfirska hefur gefið út bækur en þær telja rúmlaga 300 alls.
...Annette Lassen, rannsóknardósent í norrænum bókmenntum við Árnasafn og Kaupmannahafnarháskóla, hlaut Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2017. Verðlaunin voru veitt á hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, sumardaginn fyrsta.
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti verðlaunin. Annette hefur með kynningu á fornbókmenntunum haldið ríkulega á loft framlagi Íslands til heimsbókmenntanna. Hún hefur skipulagt fjölda ráðstefna, haldið fyrirlestra, skrifað fjölda greina og kynnt fornbókmenntir Íslendinga í fjölmiðlum. Þá ritstýrði hún, og þýddi að hluta, hinni dönsku útgáfu Íslendingasagnanna og þátta, sem var þjóðargjöf Íslendinga til Dana í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands til Danmerkur í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu.
...Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vegamálastjóri og forráðamenn verktakafyrirtækjanna Suðurverks og Metrostav frá Tékklandi skrifuðu í dag undir samning um gerð Dýrafjarðarganga en fyrirtækin áttu lægsta tilboð af fimm í verkið. Undirbúningur framkvæmda getur nú hafist.
Áætlað var að skrifa undir samninginn í dag á Hrafnseyri við Arnarfjörð að viðstöddum gestum. Vegna veðurs og ófærðar á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðum var það ekki hægt. Ekki var heldur hægt að fresta undirskriftinni lengi, fulltrúar Metrostav voru komnir frá Prag til að skrifa undir og ekki heldur gott vegna verksins sjálfs að fresta undirskrift. Það var því skrifað undir í Reykjavík í dag. Jafnframt var ákveðið að hafa athöfn og fund á Hrafnseyri og við gangamunnann í Arnarfirði þar sem verkið verður hafið um miðjan maí með formlegri athöfn eins og áður er sagt og tekin fyrsta skóflustunga.
...