A A A
04.05.2017 - 06:55 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

4. maí 1880 - Útför Jóns Sig­urðsson­ar for­seta og Ingi­bjarg­ar Ein­ars­dótt­ur konu hans

Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir.
Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir.
« 1 af 2 »
Þann 4.  maí 1880 for fram útför Jóns Sig­urðsson­ar for­seta og Ingi­bjarg­ar Ein­ars­dótt­ur konu hans fór fram í Reykja­vík með mik­illi viðhöfn og að viðstöddu fjöl­menni.

Þau lét­ust í Kaup­manna­höfn í des­em­ber 1879.

Á silf­ur­skildi á kistu Jóns stóð: „Óska­barn Íslands, sómi þess, sverð og skjöld­ur.“...
Meira
03.05.2017 - 19:21 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Krían er komin í Arnarfjörðinn!

Kría. Ljósm.: Davíð Davíðsson.
Kría. Ljósm.: Davíð Davíðsson.

Hópur af kríum mætti í Arnarfjörðinn í morgun kl. 11 fyrir hádegi. Frúin á Eyri tók sjálf á móti þessum aufúsugesti. Eru þetta fyrstu kríurnar sem við vitum um hérna fyrir vestan á þessu vori. Krían er einstakur fugl eins og allir vita. Þegar hún er mætt á svæðið er eins og allt breyti um svip.


   En þótt merkilegt sé er örn í Arnarfirði þessa dagana. Heldur hann sig í æðarvörpunum á Eyri og Auðkúlu. Konungur fuglanna er ekki sami aufúsugesturinn í æðarvörpum eins og krían. Þó svo æðarfuglinn sé ekki farinn að setjast upp ennþá, þá styttist í það. Æðarbændur eru því fegnastir þegar konungurinn lætur ekki sjá sig í vörpunum. Þar er hann bara vágestur ef satt skal segja. Þess  vegna eru menn að vona að frú Kría og bóndi hennar hreki hann á brott sem fyrst. Það er eiginlega þeirra hlutverk að verja vörpin, enda verpir hún þar sjálf og veitir æðarfuglinum mikinn stuðning í verki. Hrekur alla varga á braut sem hún getur: Örninn, krumma gamla, hettumávinn, múkkann,   tófuna, minkinn og jafnvel manninn! Krían er nefnilega einhver hugaðasti fugl sem um getur. Nokkurs konar orustuþota fuglaheimsins.

...
Meira
03.05.2017 - 18:11 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,visir.is

Guðmundur Hagalín til HS Orku

Guðmundur Hagalín Guðmundsson frá Hrauni á Ingjaldssandi.
Guðmundur Hagalín Guðmundsson frá Hrauni á Ingjaldssandi.
Guðmundur Hagalín Guðmundsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur í tækniþjónustu HS Orku. 
Guðmundur er fæddur 13. febrúar 1954 og á ræturnar að Hrauni á Ingjaldssandi. Hann er rafmagnsverkfræðingur og vélfræðingur að mennt. Hann mun koma að starfi staðartæknifræðings við byggingu Brúarvirkjunar, 10 MW vatnsaflsvirkjunar í Biskupstungum. Auk þess mun hann koma að öðrum vatnsaflsverkefnum á vegum fyrirtækisins.
Guðmundur hefur víðtæka reynslu af virkjanarekstri, bæði á sviði jarðvarma og vatnsafls. Hann hefur meðal annars starfað hjá Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur. Hann starfaði einnig hjá HS Orku sem rekstrarstjóri orkuvera frá janúar 2011 til september 2011. Síðastliðin ár hefur hann starfað sem forstöðumaður virkjanareksturs hjá Orku Náttúrunnar.
„Við fögnum Guðmundi í okkar sterka lið starfsmanna og með honum bætist við gríðarleg þekking á sviði vatnsaflsvirkjana, sem mun verða vaxandi þáttur í þróun okkar og starfsemi í framtíðinni,“ er haft eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku í tilkynningu....
Meira
02.05.2017 - 22:39 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Sjónvarpspistill: - Hrós dagsins fær Hemmi Gunn meistari sjónvarpsviðtalsins!

Hemmi Gunn og höfundur á Hrafnseyri forðum daga. (Munum ekki hver tók myndina!)
Hemmi Gunn og höfundur á Hrafnseyri forðum daga. (Munum ekki hver tók myndina!)

Ekki er að sjá að nokkur íslenskur sjónvarpsmaður hafi komist með tærnar þar sem Hemmi okkar Gunn hafði hælana viðvíkjandi viðtölum í sjónvarpi. Við hérna fyrir vestan höfum rannsakað þetta mál ofan í kjölinn. Til eru nokkur hundruð viðtöl Hemma við fulltrúa nánast allra stétta og aldurshópa þjóðfélagsins. Við nána skoðun kemur í ljós að hann var ótrúlegur. Fullyrða má að Hemmi hafi verið galdramaður á þessu sviði.  Bókstaflega á heimsmælikvarða hvað samtöl snerti og reyndar fleira. Hann var svo vel undirbúinn að með ólíkindum verður að teljast. Klikkaði aldrei svo vitað sé. Gaman og alvara í bland í innleiðingum spurningum. Hemmi hefur ábyggilega oft komið viðmælendum sínum á óvart. Þannig að svörin voru oftast veitt af mikilli einlægni og gleði.


   Það er með ólíkindum að Sjónvarpið okkar skuli ekki nota sér til dæmis þættina Á tali hjá Hemma Gunn meir en raun ber vitni. Þeir eru víst um 200 talsins!

...
Meira
02.05.2017 - 14:01 | Vestfirska forlagið,Bændablaðið,Björn Ingi Bjarnason

„Eftirherman og orginalinn“ stefna vestur á firði nú í byrjun maí

„Eftirherman og orginalinn“ stefna vestur á firði nú í byrjun maí.
„Eftirherman og orginalinn“ stefna vestur á firði nú í byrjun maí.
« 1 af 2 »
„Þetta prógramm okkar Jóhannesar, „Eftirherman og orginalinn láta gamminn geisa“, hefur fengið geysigóðar viðtökur. Við höfum verið með troðfullt í Salnum í Kópavogi og Landnámssetrinu í Borgarnesi hvað eftir annað og það er mikið hlegið,“ segir Guðni Ágústsson, sem ríður nú um héruð ásamt Jóhannesi Kristjánssyni. 
„Enn fremur förum við út á land og það er sama sagan, aðsóknin er góð.“ Guðni segir að tilefnið sé fjörutíu ára leikafmæli Jóhannesar Kristjánssonar. Hann hefur glatt þjóðina sem skemmtikraftur í fjörutíu ár en hann er landskunnur fyrir eftirhermur og hefur til að bera þá óvenjulegu hæfileika sem eftirherma að hann holdgervist og verður á sviðinu nánast eins og fórnarlambið.
„Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Guðni....
Meira
02.05.2017 - 13:02 | Vestfirska forlagið,Dýrfirðingafélagið,Björn Ingi Bjarnason

Aðalfundur Dýrfirðingafélagsins 2017

Bergþóra Valsdóttir, formaður Dýrfirðingafélagsins og tengdadóttir Önundarfjarðar. Ljósm.: BIB
Bergþóra Valsdóttir, formaður Dýrfirðingafélagsins og tengdadóttir Önundarfjarðar. Ljósm.: BIB
71. aðalfundur Dýrfirðingafélagsins verður haldinn mánudaginn 8. maí 2017 í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Fundurinn hefst kl. 20:00. Dagskrá er hefðbundin og samkvæmt lögum félagsins. Kosið verður í stjórn, skemmtinefnd og kaffinefnd. Að venju verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir ánægjulegar samverustundir á starfsárinu sem er að líða. Þetta ár hefur verið fremur tíðindalítið. Þó má færa fyrir því rök að það sæti tíðindum að rúmlega sjötíu ára gamalt átthagafélag skuli enn vera á lífi. Við héldum afar skemmtilega árshátíð í október s.l. Við leituðum að dýrfirska jólasveininum í yndislegu veðri í Gufunesi í desember s.l. Kaffidagurinn var haldinn með miklum sóma í mars. Og nú stendur aðalfundur fyrir dyrum. Við, sem nú störfum í stjórn félagsins, fögnum öllum nýjum tillögum sem bæta starfið. Við tökum á móti nýjum starfskröftum og nefndarfólki með útbreiddan faðm.

Hlökkum til að sjá ykkur þann 8. maí.

Stjórn Dýrfirðingafélagsins:
Bergþóra Valsdóttir, Gyða Hrönn Einarsdóttir, Þuríður Steinarsdóttir, Hanna Jóna Ástvaldsdóttir, Ragnar Gunnarsson, Hanna Laufey Elísdóttir og Jón Júlíus Tómasson
...
Meira
02.05.2017 - 08:17 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Jón í yfir fimmtíu litum • Afsteypurnar af Jóni Sigurðssyni áfram vinsælar

« 1 af 2 »

Hönn­un­ar­var­an Jón í lit hef­ur slegið í gegn á ís­lensk­um heim­il­um á síðustu árum. Nýj­asti lit­ur­inn, fyr­ir árið 2017, er föl­grænn og hef­ur platt­inn nú verið gef­inn út í yfir fimm­tíu lit­um frá því að hug­mynd­in um að lita af­steyp­ur af Jóni Sig­urðssyni spratt upp hjá vöru­hönnuðinum Alm­ari Al­freðssyni.
„Ég keypti kop­ar­lág­mynd af Jóni Sig­urðssyni í Góða hirðinum sum­arið 2010. Um vet­ur­inn var ég í af­steypukúrsi í Lista­há­skól­an­um og datt í hug að taka af­steypu af þess­ari mynd og gefa fjöl­skyldumeðlim­um í jóla­gjöf. Þetta sló ræki­lega í gegn og spurðist fljótt út,“ seg­ir Alm­ar. „Árið 2011 ákváðum við hjón­in svo að koma þessu út á markaðinn. Þetta ár voru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns og ákváðum við að gera tutt­ugu lág­mynd­ir í lit og kom­um þessu í nokkr­ar versl­an­ir um landið. Þá byrjaði bolt­inn að rúlla og hef­ur ekki hætt síðan og er Jón nú seld­ur í 20 versl­un­um um land allt.“

...
Meira
01.05.2017 - 13:07 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,Bjarni Guðmundsson

Bjarni Guðmundsson .... minnist baráttudagsins 1. maí:

Bjarni Guðmundsson. Ljósm.: BIB
Bjarni Guðmundsson. Ljósm.: BIB

Það voru fleiri en verkamenn sem hann áttu hér áður fyrr meir: Heima á Kirkjubóli var það líka venja að leysa hrúta út þennan dag.


Hrútaskammirnar, þessir lengst af iðjulausu flatmagar, voru í Mið-Hólhúsinu. Við bræður vorum settir upp húskampinn svo við yrðu ekki fyrir er út kæmu kempurnar. Innifyrir gekk mikið á á meðan var verið að leysa þær eftir vetrarlanga innistöðu



En svo spruttu dorrarnir út, ögn svefndrukknir og ruglaðir af birtunni í fyrstu. En svo fundu þeir taktinn og tóku til stéttarbaráttunnar, ruku að vísu í hvern sem var í byrjun, en tóku síðan að velja sér verðuga andstæðinga ... börðust vanalega af miklum þrótti framundir hádegið ...


... en þá fór einhverjir þeirra að taka eftir gróðurnálunum unir torfveggnum og með Gufulæknum - þær nægðu til þess að deyfa baráttuandann (...rétt eins og fara gerist hjá fleirum ) ...


... samt reyndu dorrar að hnuðla hver í annan fram eftir degi, margir sárir orðnir og fleiðaðir á haus og hnakka ... Rauðlitaðir við hæfi dagsins aftur á bóga ...


En svo kom að því að þeir fundu sameiginlegan óvin: Símastaurinn framan við Hólhúsið.


...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31