A A A
01.05.2017 - 12:57 | Vestfirska forlagið,Emil Ragnar Hjartarson,Björn Ingi Bjarnason

Emil Ragnar Hjartarson skrifar: FYRSTI MAÍ

Emil Ragnar Hjartarson. Ljósm.: BIB
Emil Ragnar Hjartarson. Ljósm.: BIB
Feður okkar og mæður háðu harða baráttu fyrir kjörum sem okkur finnst nú undarlegt að ekki hafi verið sjálfsögð mannréttindi. Almennar tryggingar, sjúkratryggingar samningsréttur, lífeyrir, lögboðinn hvíldartími, verkamannnabústaðir. Ekkert fékkst nema fyrir harða baráttu og miiklar fórnir vinnandi fólks. Það kostaði langvarandi verkfall að koma á atvinnuleysistryggingum. Ég nefni þetta sem fáein dæmi af fjölmörgum
Nú er okkur sagt að meira góðæri ríki á Íslandi en nokkru sinn.
Þjóðartekjur hærri en dæmi eru til um,--sameiginlegur sjóður okkar allra, ríkissjóður,öflugur. -Samt líður fjöldi fólks skort, sjúklingar eiga ekki fyrir lyfjum, ungu fólki ókleift að eignast húsnæði, leigumarkaður í krumlum fjárplógsmanna, fólk í sjávarbyggðum ofurselt duttlungum þeirra sem "eiga" sameiginlega auðlind, fiskinn í sjónum,,stjórnvöld níðast á öryrkjum og eldri borgurum, hagtölur mæla aukinn kaupmátt--ég þekki engan sem hefur orðið þess var--fjármunir fluttir í tortolur og engeyjar skattaskjólanna- eitthvað er rotið. 
...
Meira
01.05.2017 - 08:15 | Björn Ingi Bjarnason,ruv.is,Vestfirska forlagið

Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins

Frá 1. maí göngu á Ísafirði 2016. Ljósm.: Júlía Björnsdóttir.
Frá 1. maí göngu á Ísafirði 2016. Ljósm.: Júlía Björnsdóttir.

Baráttudagur verkalýðsins verður haldinn hátíðlegur í dag, 1. maí.


Fjölbreytt baráttudagskrá hefur verið skipulögð um allt land.  


Í Reykjavík fer kröfuganga frá Hlemmi klukkan hálf tvö, og útifundur settur á Ingólfstorgi að henni lokinni. Stóru stéttarfélögin í Reykjavík eru með kaffisamsæti víðsvegar um borgina eftir að útifundinum á Ingólfstorgi líkur.


Á Akureyri fer kröfuganga frá Alþýðuhúsinu klukkan tvö, sem lýkur með hátíðardagskrá í HOFI. Á Ísafirði fer kröfuganga frá Baldurshúsinu klukkan tvö og skipulögð hátíðardagskrá verður í Edinborgarhúsi. 



Þá verða kröfugöngur á Akranesi, Suðureyri og á Selfossi.


Hægt er að finna upplýsingar um dagskrá víðar um landið á heimasíðum verkalýðsfélaganna og Alþýðusambands Íslands.  



...
Meira
01.05.2017 - 08:04 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Í dag er 1. maí um land allt

Í dag er 1. maí um land allt

Samstöðukveðjur:
Vestfirska forlagið
Hallgrímur Sveinsson
Björn Ingi Bjarnason


 

...
Meira
30.04.2017 - 06:38 | Björn Ingi Bjarnason,Verkalýðsfélag Vestfirðinga,Vestfirska forlagið

Hátíðarhöldi á Vestfjörðum 1. maí 2017

Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu. Á Vestfjörðum verða hátíðarhöld með dagskrá á eftirtöldum stöðum. 


Ísafjörður
Kröfugangan leggur af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 14.00 
Dagskráin í Edinborgarhúsi:
Lúðrasveit tónlistarskólans: Stjórnandi Madis Maekalle
Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson sjómaður
Söngatriði: Sigrún Pálmadóttir, undirleikur Beata Joó
Pistill: Kolbrún Sverrisdóttir verkakona
Leikatriði: Dýrin í Hálsaskógi
Tónlistaratriði: Sigurvegarar Músíktilrauna Between Mountains
Kaffiveitingar í Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum
Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00


Suðureyri
Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14. Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar.
Ræða dagsins: Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Tónlist og söngur barna. Dúettinn Between Moutains. 
Kaffiveitingar í félagsheimili Súgfirðinga.


Bolungarvík
Bolvíkingum er boðið í kaffi og meðlæti 1. maí  kl. 14:30
Dagskrá: Tónlistarskóli Bolungarvíkur skemmtir af sinn alkunnu snilld
Hjörtur Traustason og Bjarki Einarsson taka nokkur lög

...
Meira
29.04.2017 - 21:10 | Vestfirska forlagið,Blaðið - Vestfirðir,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

Vestfirðingum boðnar heilsufarsmælingar í maí

Hjartaheill og SÍBS í samstarfi við sveitarfélög og Heilbrigðisstofnanir Vestfjarða og Vesturlands munu bjóða Vestfirðingum ókeypis heilsufarsmælingu 9.-12. maí næstkomandi. 
Mælingarnar ná til helstu áhættuþáttta lífsstílssjúkdóma þar sem mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur auk þess sem boðið verður upp á öndunarmælingu fyrir þá sem mælast lágir í súrefnismettun.
Jafnframt gefst þátttakendum kostur á að svara lýðheilsukönnun. Fræðsla um lífsstílstengda sjúkdóma verður í boði, hjúkrunarfræðingar frá heilsugæslunni verða á staðnum og veita ráðgjöf og eftirfylgd. Send verða út boðsbréf á alla íbúa á Vestfjörðum. 
Jafnframt verða niðurstöður mælinga kynntar í byggðarlögunum á Facebook og þátttakendum mun gefast kostur á að fá sínar niðurstöður sendar í tölvupósti ásamt heildarniðurstöðum, greindum eftir aldri og kyni, fyrir landsfjórðunginn. Oddvitar, bæjar- og sveitarstjórar munu opna mælingarnar í sinni heimabyggð. Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS mun halda fræðsluerindi um lífsstílstengda sjúkdóma fimmtudaginn 11. maí kl. 12-13, um stóru myndina í heilbrigðismálum....
Meira
29.04.2017 - 06:56 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Merkir Íslendingar - Regína Thorarensen

Regína Thorarensen (1917 - 2006).
Regína Thorarensen (1917 - 2006).
Regína Thor­ar­en­sen fædd­ist á Stuðlum í Reyðarf­irði 29. apríl 1917. For­eldr­ar henn­ar: Emil Tóm­as­son, bóndi og bú­fræðing­ur, og k.h., Hild­ur Þuríður Bóas­dótt­ir, hús­freyja.

Emil var son­ur Tóm­as­ar, bónda á Syðra-Krossa­nesi í Eyjaf­irði Jóns­son­ar og Guðrún­ar, móður Önnu, ömmu Valdi­mars Jó­hanns­son­ar bóka­út­gef­anda. Guðrún var dótt­ir Guðmund­ar, dbrm. í Stóra-Dun­haga í Hörgár­dal Hall­dórs­son­ar, b. á Krossa­stöðum Jóns­son­ar, bróður Jóns, afa Jóns Magnús­son­ar for­sæt­is­ráðherra. Syst­ir Hall­dórs var Guðrún, langamma Stef­áns Jó­hanns Stef­áns­son­ar for­sæt­is­ráðherra.

...
Meira
29.04.2017 - 06:11 | Vestfirska forlagið,Blaðið - Vestfirðir,Björn Ingi Bjarnason

Öflugt leiklistarlíf á þingeyri

Myndirnar eru frá sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi og Davíð Davíðsson tók þær.
Myndirnar eru frá sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi og Davíð Davíðsson tók þær.
Um páskana var mikið um að vera á þingeyri. 
Leikdeild Ungmennafélagsins Höfrungs á þingeyri setti upp Dýrin í Hálsaskógi og sýndi nokkrar sýningra við góða aðsókn. 
Þá sýndi Kómed- íuleikhúsið verkið Gísla á Uppsölum, sem farið hefur sigurför um landið og starx að páskum loknum var haldið til Austfjarða og sýnt þar. 

Myndirnar eru frá sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi og Davíð Davíðsson tók þær....
Meira
29.04.2017 - 06:05 | Björn Ingi Bjarnason,Fjórðungssamband Vestfirðinga,Vestfirska forlagið

Aukaúthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki. 


Eins og í vetur er umsóknarferlið rafrænt og er hægt að vista umsóknina og fá aðgang til að vinna í henni síðar. 


Að þessu sinni eru eingöngu verkefnisstyrkir í boði. Heildarupphæð styrkja getur orðið allt að 13 milljónum króna. 


Sérstaklega er brýnt fyrir umsækjendum að vanda umsóknir sínar. Til að umsókn hljóti styrk er ekki nóg að hugmyndin sé góð, umsóknin þarf líka að vera vel unnin. Við aðalúthlutun úr sjóðnum í vetur voru margar góðar hugmyndir sem ekki var hægt að veita styrk vegna þess að umsóknir voru hroðvirknislega unnar.


Hér má nálgast umsóknarformið og allar upplýsingar um úthlutanir.


Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 7. maí. 

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31