A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Raggi Bjarna á yngri árum. Mynd af Veraldarvefnum.
Raggi Bjarna á yngri árum. Mynd af Veraldarvefnum.

2. grein


„Í Alþýðuhúsinu var nokkuð sukksamt – eins og kallað er – og ekki verður sagt að það hafi orðið til þess að auka tiltrú mína á fullorðna fólkinu  nema síður væri. Einhverjir höfðu áhyggjur af því að það væri óhollt fyrir mig svo ungan sem ég var að hrærast í þessu andrúmslofti. En ég er viss um að það hefur fremur þroskað mig. Maður sá lífið í víðara samhengi en áður. Í hléunum var það til dæmis aðal skemmtun mín að fara upp á svalirnar, sem voru í húsinu, til að fylgjast með því sem þar fór fram. Karlar og konur stunduðu þar margvíslegar þreifingar í myrkrinu.


   Alþýðuhúsið hafði sína föstu gesti.

...
Meira
Eitt fyrsta plötuumslagið hans Ragnars Bjarnasonar. Ljósm. af Veraldarvefnum.
Eitt fyrsta plötuumslagið hans Ragnars Bjarnasonar. Ljósm. af Veraldarvefnum.
« 1 af 2 »

  1. grein


Ekki fer það á milli mála, að ef einhver skarar fram úr á einhvern hátt í þessu þjóðfélagi, er hann oftar en ekki Vestfirðingur eða af vestfirskum ættum. Enda eru fáir stoltari af uppruna sínum. Ragnar Bjarnason, söngvari, er einn af þessum stórkostlegu karakterum.


   Ragnar var ekki nema 12-13 ára gamall þegar pabbi hans, Bjarni Böðvarsson frá Hrafnseyri, gaf honum trommusett. Fyrsta hljómsveitin sem hann lék í var skólahljómsveit í Ingimarsskólanum í Rvk. Hana skipuðu auk hans, Karl Lilliendahl, Andrés Ingólfsson og Sigurður Þ. Guðmundsson. Til aðstoðar var einn eldri og reyndari, Agnar Einarsson. Þó að þeir kynnu ekki mikið, fengu þeir mjög góðar undirtektir hjá skólafélögum og kennurum.


   Næsta skref Ragga á tónlistarbrautinni var að leika með hljómsveit föður hans í útvarpsupptöku:

...
Meira
17.09.2016 - 20:50 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Þáttur úr sögu Hrafnseyrar: - Lítilsháttar af móður Jóns Sigurðssonar og systur

Endurreistur burstabærinn á Hrafnseyri. Hafliði Magnússon alþýðulistamaður í forgrunni. Hann átti heima á Steinanesi á æskuárum. Ljósm.: BIB
Endurreistur burstabærinn á Hrafnseyri. Hafliði Magnússon alþýðulistamaður í forgrunni. Hann átti heima á Steinanesi á æskuárum. Ljósm.: BIB

Madama Þórdís


“Engin bréf eru varðveitt frá madömu Þórdísi á Rafnseyri til Jóns sonar hennar, og öldungis er óvíst, að hún hafi nokk­urn tíma skrifað honum. Af þeim sökum verður því ekkert um það sagt, hvernig hún hefur litið á það, að Jón skyldi gefa sig við fornfræðisýsli og stjórnmálastörfum. Allir, sem víkja að Rafnseyrarheimili í bréfum til Jóns, minnast móður hans með mikilli virðingu og hlýleik, og er helzt svo að sjá sem hún hafi ekki aðeins ráðið á borð við bónda sinn innan stokks, heldur einnig utan. Foreldrar Jóns senda honum tíð­um sitthvað matarkyns, og jafnframt berast Rafnseyrarheim­ili gjafir frá honum.” 


Margrét á Steinanesi

...
Meira
27.08.2016 - 08:20 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Ferðamennskan: - Ferðamaður leigir sér inniskó: 1.500. - kr. takk! 4. grein

Við skoðuðum verðskrána hjá Rúmfatalagernum yfir inniskó. Inniskórnir á meðf. mynd kosta 595 kr. parið út úr búðinni. Reiknum með að Bláa lónið sé að leigja út svipaða inniskó, sem þó er alls ekki víst. Það munar þó aldrei miklu.
Við skoðuðum verðskrána hjá Rúmfatalagernum yfir inniskó. Inniskórnir á meðf. mynd kosta 595 kr. parið út úr búðinni. Reiknum með að Bláa lónið sé að leigja út svipaða inniskó, sem þó er alls ekki víst. Það munar þó aldrei miklu.
Erlendur ferðamaður ekur blístrandi eftir Keflavíkurveginum. Þá sér hann stóran baðstað, Bláa Lónið- Blue Lagoon. Hann ákveður að skella sér í bað. Samkvæmt verðskrá er aðgangseyrir  7,300 – 11,600  fyrir fullorðna. Luxury aðgangur 28,300. Þetta er allt miðað við að panta á netinu. Aðgangseyrir er 1,400 kr. hærri ef greitt er við komu í Bláa lónið. Fyrir utan sundskýlur og handklæði eru þar einnig leigðir út inniskór. Ferðamaðurinn leigir sér eitt par.
Leigan á þeim er 1,500 kr.
   Við sjáum í hendi okkar að leigan á  einum skóm á dag yfir árið er 547,500 kr. Séu 5 pör í útleigu á dag gerir það 2.737,500 kr. yfir árið. Séu 100 pör í útleigu á dag gerir það svo mikið sem 54,750,000 kr. –fimmtíu og fjórar milljónir sjöhundruð og fimmtíu þúsund krónur­ á ársgrundvelli eins og þeir segja, með virðisaukaskatti!
...
Meira
26.08.2016 - 08:47 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Ferðamennskan: - Mega Íslendingar ekki leggja á komugjöld vegna EES samningsins? 3. grein

Táknræn mynd frá Hornströndum. Tekin í ferðalagi skáta úr Skátafélaginu Hamri í Grafarvogi 2006. Ljósm.: Einar Gunnarsson.
Táknræn mynd frá Hornströndum. Tekin í ferðalagi skáta úr Skátafélaginu Hamri í Grafarvogi 2006. Ljósm.: Einar Gunnarsson.

Það eru skiptar soðanir um komugjöld ferðamanna. Sumir telja þau arfavond, einkum þeir sem maka krókinn í þjónustunni við erlenda ferðafólkið. Sumir landsþekktir ferðaþjónar fullyrða að 3000 – 5000 króna gjald sem ferðafólkið mundi greiða í aðgangseyri að náttúrulistasalnum Íslandi sé bara af hinu góða. Samkvæmt skoðanakönnunum er allt að helmingur erlendra ferðamanna hlynntur komugjöldum í einhverri mynd. Það þarf bara að vera klárt að fjármunirnir renni til uppbyggingar innviða.


 
...
Meira
Á berjamó, á berjamó að tína! Hinn landsþekkti Vestfirðingur, Halldór Hermannsson, á berjamó á æskuslóðum inni í Djúpi fyrir nokkrum árum. Mokaði upp berjunum. Sumir Vestfirðingar af eldri kynslóð lifa það bara ekki af ef þeir komast ekki í ber síðla sumars. Auðvitað á líka að fara með ferðamennina á berjamó. Ljósm. H. S.
Á berjamó, á berjamó að tína! Hinn landsþekkti Vestfirðingur, Halldór Hermannsson, á berjamó á æskuslóðum inni í Djúpi fyrir nokkrum árum. Mokaði upp berjunum. Sumir Vestfirðingar af eldri kynslóð lifa það bara ekki af ef þeir komast ekki í ber síðla sumars. Auðvitað á líka að fara með ferðamennina á berjamó. Ljósm. H. S.
Til dæmis svona:

1.     Hreppstjórar. Embætti hreppstjóra verði endurrreist í þágu ferðamanna. Landinu skipt í umdæmi þar sem þeir bera vissa ábyrgð. Þeir verði 100 talsins, þaulkunnugir menn hver á sínu svæði, jafnt karlar sem konur. Hreppstjórar starfi undir stjórn lögreglustjóra og sýslumanna og fái sérstakt erindisbréf. Þeir verði í nánu samtarfi við lögregluna, hver á sínum heimaslóðum.  

2.     Hreinlætisaðstaða. Komið verði upp hreinlætisaðstöðu um land allt þar sem þörfin er brýnust og ekki eru hótel eða veitingastaðir. Þetta verði lagleg hús með kannski 10 salernum, sameiginlegu rými með vöskum, handklæðum, speglum, lítilli sölubúð með hreinlætisvörur og aðstöðu fyrir eftirlitsmann. Húsakostur verði boðinn út í heilu lagi. Rekstur einnig boðinn út. Ókeypis aðgangur fyrir alla, innlenda sem erlenda! 50 einingar til að byrja með. Rekstur allur verði undir eftirliti hreppstjóra.
...
Meira
Frá Hornströndum. Táknræn mynd um íslenska náttúru. Ljósm. Einar Gunnarsson.
Frá Hornströndum. Táknræn mynd um íslenska náttúru. Ljósm. Einar Gunnarsson.

Steingrímur J. Sigfússon, harðjaxlinn gamli,  flutti eldspúandi ræðu á Alþingi í dag um ferðamálin. Í henni skammaði hann ráðamenn upp úr skónum vegna lélegrar frammistöðu. Að hans dómi er það ekki bara eitt heldur allt sem þarf að bæta. Steingrímur sagði að á næsta ári kæmu 2 milljónir ferðamanna til landsins. Aukning upp á þrjú til fjögur hundruð þúsund. Við værum skelfilega vanbúin að taka við þessu, höldum ekki einu sinni í horfinu. Allt að grotna niður, hreinlætismál í hreinum ólestri, vegirnir ónýtir og svo framvegis.


   Og er nú lag að nefna það rétt einu sinni sem við þrír spekingar hér fyrir vestan höfum verið að röfla um: Við höfum lagt til að erlendir ferðamenn sem ætla að skoða og ferðast um landið greiði 5,000,- kr. í komugjald eða aðgangseyri, sem vel mætti kalla Íslandsgjald. Á næsta ári gæti það hugsanlega orðið 8-10 milljarðar króna miðað við hátt í tvær milljónir gjaldskyldra ferðamanna. En er eitthvert vit í þessu?

...
Meira
08.08.2016 - 19:25 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Guðmundur Ingvarsson

Til umræðu í komandi kosningabaráttu: - 2. grein - Aldingarðurinn Vestfirðir

Lagðprúðar vestfirskar ær raða sér á garðann. Ljósm. H. S.
Lagðprúðar vestfirskar ær raða sér á garðann. Ljósm. H. S.
« 1 af 3 »

Ekki verður annað sagt en Vestfirðir séu einn samfelldur aldingarður til sjós og lands. Fyrir ströndum eru einhver gjöfulustu fiskimið sem þekkjast. Þar eru sauðfjárhagar betri en víða annars staðar í heimi hér. Og vestfirsk náttúra er sér á báti ásamt Vestfirðingum sjálfum. Hér er allt sem mannskepnan þarf á að halda. Þetta vita margir. Samt er eitthvað að.


Fiskurinn í sjónum


   Sum „krummaskuðin“á Vestfjörðum bíða nú örlaga sinna. Þar fækkar fólki, fækkar og fækkar meðal annars vegna þess ómannlega kerfis sem við höfum komið okkur upp en þurfum lífsnauðsynlega að breyta. Sveitarfélögin eru varnarlaus heyrðist nýlega fyrir sunnan. Almannarómur segir skynsamlegast að heimamenn fái að róa til fiskjar með vistvænum veiðarfærum, fiskinum landað heima og unninn þar og hvergi annarsstaðar. En svo kemur þversögnin sem sjaldan er nefnd: Um helmingur starfsfólks í vestfirskum frystihúsum er útlendingar.  Einar Gunnar Einarsson, sýslufulltrúi á Ísafirði, sem margir muna enn, sagði eitt sinn að gamni sínu: „Á Þingeyri vinna menn í fiski, éta fisk og tala um fisk.“ En öllu gamni fylgir nokkur alvara. Þetta bar auðvitað vott um einhæfni, en samt var þetta grundvöllurinn. Hann er enn fyrir hendi: Hafnarmannvirki, vinnsluhús með fiskvinnslusérfræðingum og eitthvað er enn eftir af sjómönnum. Og fiskurinn syndir upp í kálgarða!


 


Fiskeldið

...
Meira
28.07.2016 - 09:30 | Guðmundur Ingvarsson,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Til umræðu í komandi kosningabaráttu: 1. grein. - Bankaleyndin sér um sína menn!

Bankarnir þrír. Ljósm. skuldlaus.is.
Bankarnir þrír. Ljósm. skuldlaus.is.
Hvað merkir orðið bankaleynd? Hin gamla íslenska orðabók Menningarsjóðs segir það skýrum stöfum: Banki er peningastofnun. Að leyna er að dylja, hylja, fela, launung, dul og fleira í þeim dúr. Þar höfum við það. Í skjóli þessarar launungar fara menn sínu fram. Til dæmis eiturlyfjabaróninn. Hann kemur með alla sína vel fengnu peninga, sem hann hefur unnið fyrir í sveita síns andlitis, og lætur leggja þá inn í bankana. Fyrir honum er borin mikil virðing, sem og öðrum sem peninga hafa milli handa. En það má ekki segja frá! Yfirleitt eru það einhverjar tilviljanir sem ráða því hvort upp kemst um hina annars ósnertanlegu fjármálaglæpamenn nútímans, sem stela öllu steini léttara sem þeir geta. Bankaleyndin sér um sína menn!...
Meira
Hannibal Valdimarsson.
Hannibal Valdimarsson.
„Það sem reitt hafði Hannnibal til reiði var að Lýður ýjaði að tvískinnungshætti milli þingmannsins, sem hafði beitt sér fyrir vegarspottanum, og formanns verkalýðsfélagsins, sem hafði lagt blessun sína yfir verkfallið. Hannibal sagðist ekki taka við neinum skipunum frá útsendara vegamálastjóra í þessu máli. Verkstjórinn gæti sjálfur beitt sér fyrir því að leysa verkfallið með því að ganga að sanngjörnum kröfum verkamanna. Lýður lét sér hvergi bregða....
Meira
Eldri færslur
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31