Öll vötn til Dýrafjarðar - Frumkvæðissjóður - opnað hefur verið fyrir umsóknir
Sem hluti af aðgerðum vegna veirufaraldurs hefur Alþingi samþykkt að veita aukalega 100 m.kr. til Brotthættra byggða á árinu 2020. Tekin hefur verið sú ákvörðun að skipta fjárveitingunni í tvo hluta, Frumkvæðissjóð og Öndvegissjóð. 60 m.kr. er veitt í Frumkvæðissjóð sem skiptist jafnt á milli þátttökubyggðarlaga, 8.5 m.kr. á hvert þeirra. Verkefnisstjórn hvers byggðarlags úthlutar úr sjóðnum. Öndvegissjóður 40 m.kr. er veitt í samkeppnissjóð sem er sameiginlegur fyrir öll sjö byggðarlögin. Þær umsóknir sem berast í Frumkvæðissjóðinn verða metnar af verkefnisstjórn byggðarlagsins og úr þeim hópi eru valin að hámarki tvö úrvalsverkefni sem gefst kostur á að sækja einnig í Öndvegissjóðinn.