Opnað fyrir umsóknir um styrk í verkefnið Öll vötn til Dýrafjarðar
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð úr sjóði sem verkefnisstjórn veitir úr í umboði Byggðastofnunar vegna ársins 2020.
Umsóknum skal skilað á tölvutæku formi á þar til gerðu eyðublaði sem finna má hér, fésbókarsíðu Blábankans og heimasíðu Vestfjarðarstofu.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2020. Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri Agnes Arnardóttir, netfang: agnes@vestfirdir.is
Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.
Skýrslu með framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun fyrir árin 2019-2021 má finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is og vef Vestfjarðarstofu www.vestfirdir.is undir heiti verkefnisins, ásamt nánari upplýsingum um úthlutunarreglur úr sjóðnum.