Við Fjörðinn
Gistihúsið Við Fjörðinn er á Aðalstræti 26 á Þingeyri. Í gistihúsinu er góð aðstaða fyrir hópa og einstaklinga, í herbergjum eða íbúðum. Þar er einnig góð aðstaða fyrir hreyfihamlaða og íbúð þar sem sérstakt tillit er tekið til fólks í hjólastólum. Gistihúsið er opið allt árið.