18.05.2011 - 17:09 | Tilkynning
Leiðrétting
Dýrafjarðardaganefnd 2011 vill koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri:
Við viljum vekja athygli á athugasemd sem Daðey Arnborg, formaður íbúasamtakanna Átaks, setti fram við frétt varðandi Dýrafjarðardaga. Það er á misskilningi byggt að erfiðlega hafi gengið að fá heimamenn til að starfa við hátíðina. Þvert á móti hafa allir verið boðnir og búnir til að aðstoða, og má nefna að nefndarmenn í ár sóttust allir eftir að fá að starfa við hátíðina. Nefndin hefur, í samvinnu við íbúasamtökin Átak, velt fyrir sér með hvaða hætti væri hægt að koma upp kerfi sem gengi ár frá ári, varðandi nefndarstörf og skipulag.
Við erum ekki í nokkrum vafa um að Dýrfirðingar taki vel á móti hátíðargestum eins og þeirra er von og vísa, og hlökkum til að sjá sem flesta á dýrðlegum Dýrafjarðardögum!
Erna Höskuldsdóttir
Helgi Ragnarsson
Jóhanna Ósk Halldórsdóttir
Guðni Páll Viktorsson
Ólafur Skúlason