A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
17.05.2011 - 21:30 | Tilkynning

Varðandi Dýrafjarðardaga

Frá Dýrafjarðardögum. Mynd: JÓH
Frá Dýrafjarðardögum. Mynd: JÓH
Eins og kunnugt er þá er undirbúningur fyrir Dýrafjarðardaga þetta árið kominn í gang. Síðustu ár hefur því miður gengið erfiðlega að fá einstaklinga til að leggja hátíðinni lið, hvort sem um er að ræða skipulagningu hátíðarinnar eða vinnu á sjálfum Dýrafjarðardögum. Með þessu áframhaldi sjáum við fram á að þessi stórglæsilega hátið okkar Dýrfirðinga heyri liðinni tíð, en hátíðin var einmitt endurvakin árið 2002 eftir nokkurra ára hlé, sökum sama vandamáls. Reynt hefur verið að fá félagasamtök á staðnum til að skipa tvo fulltrúa frá hverju félagi í stjórn hátíðarinnar en það hefur ekki borið árangur.

Á aðalfundi íbúasamtakanna Átaks þann 5. apríl s.l. kom fram sú tillaga að skipa þyrfti í stjórn Dýrafjarðardaga, líkt og vaninn hefur verið með aðra stórviðburði í firðinum, t.d. Hjónaball og Þorrablót. Íbúasamtökin og núverandi stjórn Dýrafjarðardaga hafa því tekið þá ákvörðun að stjórn Dýrafjarðardaga skipi 5-7 fulltrúa í nefnd til að taka við af sér og koma að skipulagningu Dýrafjarðardaga 2012. Sú nefnd myndi svo skipa 5-7 fulltrúa til að koma að skipulagningu Dýrafjarðardaga árið 2013 og svo koll af kolli. Ávallt skulu þó að minnsta kosti 2 einstaklingar frá fyrri stjórn sitja í þeirri næstu með það að markmiði að ný stjórn hefði trygga leiðsögn í þessu stóra og skemmtilega verkefni.

Að lokum vilja íbúasamtökin hvetja sem flesta til að leggja hátíðinni okkar í ár lið og bjóða sig fram sem sjálfboðaliðar með því að hafa samband við Ernu Höskuldsdóttur. Það þarf ekki að vera stórt - margar hendur vinna létt verk.

Fyrir hönd íbúasamtakanna Átaks
Daðey Arnborg Sigþórsdóttir, formaður
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30