A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
18.03.2013 - 17:41 | Ólöf Guðný Valdimarsdóttir

Við erum þjóðin

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir frá Núpi í Dýrafirði, arkitekt, oddvitaefni Dögunar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir frá Núpi í Dýrafirði, arkitekt, oddvitaefni Dögunar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
« 1 af 2 »
Okkur er tamt að tala um ríkið, sveitarfélögin, atvinnurekendurna og launþegana sem óskylda og andstæða hópa. Það er kannski ekki skrýtið eins og kerfið virkar. Ríkið sker nú niður í öllu kerfinu og leggur auknar álögur á fólk og fyrirtæki til að standa undir skuldbindingum. Sveitarfélögin hafa hækkað fasteignagjöld og ýmis önnur gjöld og lækkað þjónustustig til að standa undir skuldbindingum. Fyrirtæki hækka vöru og þjónustu til að standa undir skuldbindingum. Fólkið í landinu, fjölskyldurnar, sem þurfa líka að standa undir skuldbindingum hafa auk þess þurft að taka á sig óverðskuldaðar fjárhagsbirgðar m.a. í formi skatta til að greiða skuldir sem fjármálafyrirtæki og starfsmenn þeirra komu okkur í. 

Skuldirnar hækka launin ekki

Þrátt fyrir verri þjónustu og hærra vöruverð hafa launin ekki hækkað að sama skapi. Þvert á móti hefur kaupmáttur rýrnað svo um munar og umtalsverð lífskjaraskerðing átt sér stað. Í hvert skipti sem gjöld, þjónusta og vöruverð hækka, hækka verðtryggðu lánin okkar. Peningamaskína tekur peninga sjálfvirkt úr báðum vösunum hjá fólki og fjölskyldum algerlega óháð launahækkunum. Á sama tíma niðurgreiðir ríkið vexti fyrir fjármagnseigendur í formi vaxtabóta. Bankarnir græða sem aldrei fyrr. 

Dögun fyrir fólkið og samfélagið

Dögun vill breyta þessu. Dögun vill vinna fyrir heimilin í landinu og fólkið. Dögun vill m.a.: Afnema verðtryggingu á lánum til einstaklinga og setja lög um raunhæfa lágmarksframfærslu. Leiðrétta stökkbreytt lán heimilanna. Setja þak á vexti húsnæðislána. Aðskilja viðskipta- og fjárfestingabanka. Þannig verða heimilin betur í stakk búin til að greiða í sameiginlegan sjóð ríkisins og að kaupa þjónustu og vörur af fyrirtækjum í landinu. Rekstrargrundvöllur fyrirtækjanna batnar og álag á félagslega kerfið og ríkiskassann minnkar. Ávinningur til heilla fyrir alla. Dögun fyrir ríkið, sveitarfélögin, fyrirtækin og fólkið. Dögun fyrir þig. xT.is

Hverjir erum við 

Við erum fólkið sem vinnur hjá ríki og sveitarfélögum og fyrirtækjum. Við erum alþingismenn. Við erum atvinnurekendur. Við erum launþegar. Við erum fólkið sem stjórnar þjóðfélaginu og höldum því uppi og setjum leikreglurnar. Við erum fólkið sem rekur heilbrigðiskerfið og sækjum þangað þjónustu. Við erum fólkið sem vinnur í heilbrigðiskerfinu. Við erum íbúar sveitarfélaganna. Við erum fólkið sem vinnum í menntakerfinu og menntum börnin okkar. Við erum fólkið sem verður gamalt og fer á öldrunarstofnanir. Við erum fólkið sem á lífeyrissjóðina. Við erum líka fólkið sem á fjármálastofnanir. Við erum fjölskyldufólkið í landinu og viljum eiga góð samskipti við hvert annað og allan heiminn. 

Málið snýst um okkur

Málið snýst ekki um aðra. Það snýst um okkur. Það eru ekki einhverjir aðrir. Það erum við. Við erum 321.857 Íslendingar og við erum samábyrg um að snúa dæminu við á braut farsældar fyrir okkur öll en ekki bara fyrir suma. Hverfum frá sérhagsmunapólitík sjálfstæðis- og framsóknarmanna. Hverfum frá ríkispólitík Samfylkingar og Vinstri Grænna. Setjum hagsmuni heildarinnar og almannaheill í forgang. Þangað stefnir Dögun. Dögun vill breyta áherslunum og kerfinu og jafna lífskjör fólksins. Þannig hagnast allir. Við viljum réttlæti, sanngirni og lýðræði fyrir okkur öll; heimilin, fjölskyldurnar og fólkið. Við erum fólkið og viljum breyta samfélaginu með ykkur. Saman getum við það ef þið standið með okkur. Vertu með. xT.is

 
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir frá Núpi í Dýrafirði, arkitekt, oddvitaefni Dögunar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30