Veistu svarið? Getraun fyrir unga sem aldna.
Vestfirsku Alparnir og byggðirnar þar í kring
Sá sem getur svarað meira en helmingnum af eftirfarandi
spurningum rétt er nokkurs vísari um skagann milli Arnarfjarðar
og Dýrafjarðar, sem sumir kalla Vestfirsku Alpana og byggðirnar
þar í kring. Þú svarar einfaldlega með því að taka afrit af öllum spurningunum, svara þeim í tölvupósti og senda svo á
Dregið verður úr réttum lausnum og fá 7 heppnir sendar heim glæsilegar bækur frá Vestfirska forlaginu.
1. Hvað hét kvenfélagið sem starfaði af miklum þrótti
í Haukadal í Dýrafirði á fyrri hluta 20. aldar?
Svar:___________________
2. Nefnið tvö fell í Dýrafirði.
Svar:_________________________
3. Hvaða bær á Ingjaldssandi er nú eini bærinn sem þar
er í byggð?
Svar. ___________________
4. Frá hvaða bæ í Arnarfirði er hinn sívinsæli stórdægurlagasöngvari
Ragnar Bjarnason ættaður?
Svar.____________________
5. Er hægt að sjá til Grænlands af Kaldbak, hæsta fjalli
Vestfjarða?
Svar._________
6. Hvaðan var hinn þekkti vestfirski rithöfundur Guðmundur
Gíslason Hagalín ættaður?
Svar:____________________
7. Hvað hét eiginkona Gísla Súrssonar?
Svar:__________________________
8. Hvaða forseti íslenska lýðveldisins var áður alþingismaður
fyrir Vestur-Ísafjarðarsýslu í áratugi?
Svar.__________________________
9. Nefnið tvo kaupmenn sem gerðu garðinn frægan á Þingeyri
á fyrri hluta 20. aldar.
Svar:______________________________________
10. Hver gegndi síðastur manna embætti hreppstjóra
Þingeyrarhrepps í Dýrafirði?
Svar.__________________________
11. Hvað heitir hæsti kollurinn á Glámuhálendinu?
Svar.____________________
12. Á hvaða tveimur bæjum í Dýrafirði
er mest æðarrækt?
Svar:__________________________
Nafn sendanda: _____________________________________
Heimili ______________________________
Póstnúmer og staður ____
____________________________________________________________________________
Vestfirsku Alparnir
Skaginn milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar hefur í seinni tíð oft verið nefndur Vestfirsku Alparnir þar sem hvassbrýnd fjöllin á utanverðum skaganum minna nokkuð á hin þekktu Alpafjöll suður í Evrópu.
Ferðafrömuðurinn Einar Þ. Guðjohnsen mun líklega fyrstur hafa byrjað að nefna skagann þessu nafni. Ef til er ævintýraheimur landslags þá er hann einmitt á þessum slóðum.
Og nú er að spreyta sig á getrauninni.
Hallgrímur Sveinsson.