A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
05.04.2009 - 11:35 | Hallgrímur Sveinsson

Útrásarvíkingurinn Albert Guðmundsson - 1.grein

Albert á ritstjórnarskrifstofu Parísarblaðsins “L’Equipe” að endurtaka leikbragð sem blaðamenn trúðu ekki að væri í mannlegu valdi að leika. Þetta var 1950.
Albert á ritstjórnarskrifstofu Parísarblaðsins “L’Equipe” að endurtaka leikbragð sem blaðamenn trúðu ekki að væri í mannlegu valdi að leika. Þetta var 1950.
“Herbergið okkar á Smiðjustíg var súðarherbergi. Uppgangurinn var þröngur og geymsluloft þegar upp kom. Þarna voru tvö súðarherbergi sitt hvoru megin í húsinu. Á miðju loftinu, eða á geymslugangi beint á móti stigaopinu, var vaskur. Þessi vaskur var hið eina sem við höfðum er til þæginda mætti telja. Okkar herbergi var til hægri, þegar upp kom, líkast til hefur það verið tuttugu og fimm eða þrjátíu fermetrar. Dyrnar opnuðust inn og við hurðina var lítil kolakabyssa, sem bæði var eldað á og kynt með. Annar hiti var ekki. Og þar sem þetta var undir súð, var ekki vel einangrað og því oft kalt á vetrum, stundum hrímað.

Rúm ömmu var vinstra megin. Hægra megin var dívan, sem ég átti. Það var bókahilla við höfðalagið mín megin, og hennar megin var lítill kistill sem hún átti og hafði að geyma allar hennar eigur.” Svo segir frá Albert Guðmundsson í bók sinni Albert eftir Gunnar Gunnarsson, útg. Setberg, Rvk. 1982. Í þeirri ágætu bók segir hann frá hinum hörðu lífskjörum í Reykjavík kreppuáranna og áranna þar á eftir og hvernig hann og amma björguðu sér í fátæktinni.

Albert fór til náms í Skotlandi árið 1945 með nesti og nýja skó eins og karlssynirnir í ævintýrunum. Lítið hafði hann handa á milli annað en áræðni, kraft, gott upplag og uppeldi.

Hann var frá 1947-1955, atvinnumaður í knattspyrnu í Frakklandi og Ítalíu, sá fyrsti í Evrópu, sem kom frá Norðurlöndum og var um tíma jafnvel talinn hæst launaði atvinnumaður í heimi í knattspyrnu. Áður hafði hann verið um skeið áhugamaður hjá Glasgow Rangers í Skotlandi og Arsenal í Englandi. Eftir að Albert kom heim úr víking gerðist hann umsvifamikill á ýmsum sviðum og var umdeildur mjög. Hann var kallaður vinur litla mannsins. Um það munum við fjalla í næstu grein.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30