„Ég sendi þér miða með timbrinu“
Lítill fugl hvíslaði því að mér að ef til vill væri reynandi að hafa samband við Einar Guðfinnsson í Bolungavík. Það gerði ég og niðurstaðan sú að nóg væri til af timbrinu og það gæti ég fengið með Særúnu sem færi frá Bolungavík síðari hluta dagsins. Hún þyrfti að taka nokkrar lýsistunnur á Þingeyri. Ég gekk frá timburmagninu og spurði hvernig við ættum að ganga frá greiðslum. Ég sendi þér miða með timbrinu og svo hugsum við ekki meira um það í kvöld. Í bili er ekki til neitt þakjárn en er væntanlegt eftir áramótin.
Áramótin liðu og með nýu ári fyllast menn bjartsýni og ég ræddi þetta mál við Þórð heitinn Sigmundsson. Hann taldi að verslun Sigmundar Jónssonar ætti ónotað innflutningsleyfi fyrir þakjárni hjá J. Þorláksson & Norðmann. Hann bauðst til að athuga þetta og tilfellið var að þetta reyndist rétt hjá honum. Járnið kom með næstu ferð Særúnar frá Reykjavík á vegum Einars Guðfinnssonar og komst á þakið og flesta veggi fyrir Góulok.
Svona var Einar Guðfinnsson. Hann treysti mönnum þangað til hann reyndi annað.
Bjarni Georg Einarsson.