Vorfundur Vestfirska forlagsins
Vorfundur Vestfirska forlagsins var haldinn á Þingeyri þann 6. júní s.l.
Þar gerði Hallgrímur Sveinsson á Brekku grein fyrir þem bókum sem Vestfirska forlagið mun gefa út á þessu ári og eru nokkrar reyndar útgáfur sem ná til næstu ára.
Á fundinum var síðan ákveðin útgáfa á -Vegavinnusögum- Emils R. Hjartarsonar f.v. skólastjóra á Flateyri. Emil varð 80 ára þann 23. apríl 2016 og mun bókin koma út í lok afmælisársins. Ritstjórar með Emil voru skipaðir Flateyringarnir þeir Guðmundur Jón Sigurðsson og Björn Ingi Bjarnason.
Í lok vorfundarins funduðu ritstjórar Þingeyrarvefsins í Simbahöllini, þeir Hallgrímur Sveinsson og Björn Ingi Bjarnason. Þar var ákveðið að Vestfirska forlagið muni áfram ritstýra Þingeyrarvefnum eins og verið hefur síðustu misserin.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Simbahöllinni.