31.05.2010 - 17:28 | BB.is
Vísi lokað í þrjá mánuði
Fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri verður lokað í þrjá mánuði vegna langvarandi hráefnisskorts. Síðasti vinnudagur fyrir lokun er í dag. „Þetta eru tæpir tveir mánuðir umfram sumarfrí sem við þurfum að hafa lokað. Við erum komnir í þannig veiði að þetta er eina svarið þar sem markaðsverðin eru ekki nógu stabíl og framboðið ekki nóg," segir Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, sem rekur fiskvinnslu á Þingeyri. „ Nú er verið að veiða keilu og löngu sem fer í salt, við erum að missa þarna sem nemur einum mánuði í vinnslu vegna strandveiðanna," bætir hann við. Vísir hóf vinnslu á Þingeyri fyrir áratug og eru starfsmenn vinnslunnar nú um 25-30 að öllu jöfnu. Miðað er við að vinnsla hefjist aftur í september.
Auk Þingeyrar er Vísir hf. með starfsstöðvar í Grindavík, á Djúpavogi og á Húsavík en vinnslunni á síðastnefnda staðnum verður einnig lokað í þrjá mánuði. Vísir gerir út fimm báta sem veiða þar sem fiskurinn er og landa þar sem hentast er hverju sinni en síðan er honum ekið á vinnslustað milli landshluta