Vinir alþýðunnar á Eyrarbakka minntust Hrafnseyrarbræðra
Vinir alþýðunnar á Eyrarbakka buðu til aðventustundar í hádeginu , mánudaginn 12. desember sl. í Alþýðuhúsinu á Eyrarbakka í Félagsheimilinu Stað.
Veislustjóri var Siggeir Ingólfsson, Staðarhaldari á Stað.
Á borðum voru afurðir Hjallastefnurnar sem Vinir alþýðunnar hafa verkað á þjóðlegan máta úr hráefni sem veitt hefur verið af Eyrarbakkabátnum Mána ÁR. Þetta var; kæst skata – nætursaltaður þorskur og siginn fiskur sem verkaður hefur verið í útsýnispallinum við Alþýðuhúsið á síðustu vikum. Þúsundir erlendra ferðamanna hafa myndað þar verkunina á fiskinum og þannig vottað þessa þjóðlegu verkunaraðferð Hjallastefnunnar.
Sérstakur gestur aðventustundarinnar var Ásmundur Friðriksson, alþingismaður í Suðurkjördæmi.
Björn Ingi Bjarnason, forseti Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi, flutti blandaða þjóðlega hugvekju í menningarlegu samspili Vestfirðinga og Sunnlendinga fyrr og nú. Nefndi hann sérstaklega Hrafnseyrarbræðurna úr Arnarfirði; þá Jón Sigurðsson forseta og frelsishetju og bróður hans Jens, sem var fyrsti barnakennarinn á Eyrarbakka og síðar rektor Lærðaskólans í Reykjavík.
Þá var í lokin Bókalottó þar sem dregnar voru út bækur frá Vestfirska forlaginu.