A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Hrafnhildur Skúladóttir á Þingeyri hefur lagt fram kauptilboð í Vallargötu 1 á Þingeyri en hún sér fyrir sér að hægt verði að koma þar upp dýrfirsku sögubrotasafni í húsnæðinu.
Hrafnhildur Skúladóttir á Þingeyri hefur lagt fram kauptilboð í Vallargötu 1 á Þingeyri en hún sér fyrir sér að hægt verði að koma þar upp dýrfirsku sögubrotasafni í húsnæðinu.
Hrafnhildur Skúladóttir á Þingeyri hefur lagt fram kauptilboð í Vallargötu 1 á Þingeyri en hún sér fyrir sér að hægt verði að koma þar upp dýrfirsku sögubrotasafni í húsnæðinu. Í bréfi frá Hrafnhildi til bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kemur fram að ráðast þurfi í gagngerar endurbætur á húsinu að innan og utan. Nái að semja um kaup á húsinu sér hún fyrir sér að loknum endurbótum að handverkshópurinn Koltra fái aðstöðu á jarðhæð hússins ásamt upplýsingamiðstöð ferðamanna sem handverkskonur hafa séð um rekstur á í fjölda ára. Einnig eru hugmyndir um að dýrfirsku sögubrotasafni verði komið á laggirnar, þar sem tímabilum í sögunni yrðu gerð skil. Í bréfinu er tilboðsverð ekki nefnt.

Alls hafa þrjú tilboð borist í Vallargötu 1. Bæjarstjóri upplýsti á fundi bæjarráðs að tvö önnur tilboð hefðu borist í húsið. Fljótlega verður unnið úr tilboðunum og verði ekki af viðskiptum, verður hægt að ganga til samninga við Hrafnildi Skúladóttur. Bæjarráð samþykkti að tilboðið verði sett í vinnslu ásamt fyrri tilboðum í húsið.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30