A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
02.03.2016 - 08:18 | Vestfirska forlagið,skutull.is

Vilja stækka friðlýst svæði við Dynjanda

Hafliði Magnússon (1935-2011) við Dynjanda í Arnarfirði. Ljósm.: BIB
Hafliði Magnússon (1935-2011) við Dynjanda í Arnarfirði. Ljósm.: BIB
Umhverfisstofnun hefur lagt til að friðlýst svæði við Dynjanda í Arnarfirði verði stækkað sem og friðlýsing náttúruvættisins endurskoðuð til að tryggja verndun vatnasviðs Dynjandisfoss og umhverfis hans. Tillagan er meðal annars til komin vegna þess að oftar en einu sinni hefur komið til álita að veita vatni úr Stóra-Eyjavatni, sem er stærsta stöðvatnið á vatnasviði Dynjanda og utan friðlýsingarinnar, en einnig vegna aukins fjöldi ferðamanna við fossinn. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær.


Umhverfisstofnun telur að núverandi friðlýsingarskilmálar og markið friðlýsingar náttúruvættisins séu óskýr og ekki í samræmi við verndarmarkmið Dynjanda, því sé nauðsynlegt að taka friðslýsinguna til endurskoðunnar sem og að stækka friðlýsta svæðið.

Náttúruvætti frá 1981

Í upplýsingum frá Umhverfisstofnun segir að svæðið sé: „Að mestu ósnortið og einkennist af áhrifum jökla sem hafa sorfið landið og skilið eftir sig mikinn fjölda vatna og tjarna á Dynjandisheiði.“ Dynjandi og aðrir fossar í Dynjandisá voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1981 og var tilgangur friðlýsingarinnar að vernda fossastigann í ánni sem og auðvelda aðgengi almennings. Tillaga Umhverfisstofnunnar um stækkun og endurskoðun friðlýsta svæðisins var lögð fram á fundi Skipulags- og mannvirkjanefndar Ísafjarðarbæjar í síðustu viku og mun umhverfisnefnd sveitarfélagsins tilnefna fulltrúa í samstarfshóp um undirbúning endurskoðunarinnar. Einnig hefur verið óskað eftir afstöðu og tilnefningu frá landeigendum, RARIK.

Vildu skerða streymi í Dynjanda

Hákon Ásgeirsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir að oftar en einu sinni hafi það komið til álita að veita vatni úr Stóra-Eyjavatni. Á síðasta ári hafnaði Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar breytingum á aðalskipulagi Ísafjarðabæjar þar sem gert var ráð fyrir að veita vatni úr Stóra-Eyjavatni að ósk Orkubús Vestfjarða. Í bókun nefndarinnar koma fram að ekki kæmi til greina að skerða náttúrulega fegurð Dynjanda með skerðingu á vatnasviði hans. Á síðasta ári var svo samþykkt verndar- og stjórnunaráætlun fyrir náttúruvættið Dynjanda sem Umhverfisstofnun vann í samstarfi við Ísafjarðarbæ og landeigendurnar, RARIK. Hákon segir að tillagan um endurskoðun friðlýsingarinnar komi í kjölfar þessarar vinnu.

Mikilvægt að stýra ferðamönnum

Umhverfisstofnun telur mikilvægt að skerpa á reglum sem gilda um náttúruvættið Dynjanda, sérstaklega í ljósi þess ferðmönnum á svæðinu hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og segir Hákon að ein leið til verndunar felist í skýrari reglum um umgengni á svæðinu sem og aðgengi eins og í tilfellum skemmtiferðaskipa sem taka í auknum mæli land í Dynjandisvogi.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30