A A A
  • 1950 - Árni Ásbjörn Jónsson
  • 1962 - Siggeir Stefánsson
12.01.2010 - 23:27 | BB.is

Vilja hvorki selja né leigja

Dýrafjörður
Dýrafjörður
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt til að landsspilda í Dýrafirði sem óskað hafði verið eftir til skógræktar verði hvorki seld né leigð að sinni. Á bæjarráðsfundi var farið yfir feril erindis frá konu í Dýrafirði sem óskaði eftir kaupum á landsspildu úr landi Sanda í Dýrafirði eða til leigu 99 ára ef kaupsamningar næðust ekki. Hafði hún í hyggju að hefja skógrækt í samstarfi Skjólskóga á eignarjörð sinni Brekku í Dýrafirði og liggur sú jörð að landi Sanda. Um er að ræða u.þ.b. 7,5 hektara svæði. Í kjölfarið fékk bæjarráð upplýsingar um að uppi sé ágreiningur um landamerki á milli jarðanna Bakka, Brekku og Sanda í Dýrafirði.
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31