A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
28.10.2009 - 15:54 | BB.is

Vilborg skrifar sögu Auðar djúpúðgu

Vilborg Davíðsdóttir
Vilborg Davíðsdóttir
Út er komin hjá Máli og menningu skáldsagan Auður eftir Þingeyringinn Vilborgu Davíðsdóttur. Auður sú er um ræðir er landnámskonan Auður djúpúðga Ketilsdóttir,ættmóðir Laxdæla, sem nam land í Dölum og bjó í Hvammi. Í káputexta bókarinnar segir: „AUÐUR, dóttir víkingahöfðingjans Ketils flatnefs, vex upp á Suðureyjum, ættstór og skapheit. Allt hennar fólk er heiðið en þegar hún kynnist Gilla munki laðast hún bæði að honum og boðskap hans um Hvítakrist. Fullveðja er Auður gefin Ólafi hvíta, konungi yfir Dyflinni á Írlandi. Samband þeirra er heitt en stormasamt og vináttan við Gilla verður henni dýrkeypt.“

Vilborg hefur áður sent frá sér sex sögulegar skáldsögur og var síðasta skáldsaga hennar, Hrafninn, tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2006.

fridrika@bb.is
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31