A A A
  • 1932 - Kristín Kristjánsdóttir
  • 2004 - Óttar Pétursson
  • 2006 - Carmen Kristín Vignisdóttir
16.09.2008 - 23:55 | skutull.is

Vesturleiðin verður alltaf styttri

Vestfjarðavegur verður 50 km. styttri árið 2012, heldur en Djúpið og Arnkötludalur
Vestfjarðavegur verður 50 km. styttri árið 2012, heldur en Djúpið og Arnkötludalur
Með göngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og þverun Gufufjarðar, Djúpafjarðar og Þorskafjarðar í Austur-Barðastrandarsýslu verður leiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um Vestfjarðaveg 407 kílómetrar. Leiðin frá Ísafirði um Djúpveg með nýju brúnni yfir Mjóafjörð og veginum um Arnkötludal frá Hólmavík í Reykhólasveit til Reykjavíkur verður hinsvegar 454 kílómetrar. Þannig verður Vesturleiðin stysta leiðin frá Ísafirði til Reykjavíkur.

Núverandi sumarvegur sem flestir aka um Ísafjarðardjúp, yfir Eyrarfjall og um Þorskafjarðarheiði er 440 kílómetra löng til Reykjavíkur, en um Vestfjarðaveg 456 kílómetrar. Á veturna þegar farið er um Steingrímsfjarðarheiði og Strandasýslu er akvegurinn milli Ísafjarðar og Reykjavíkur 495 kílómetrar. Þegar vegur um Arnkötludal verður kominn í gagnið á næsta ári, styttist sú leið í 454 kílómetra. Hún verður væntanlega ekki fær fyrr en eftir ár, þar sem framkvæmdir hafa dregist frá því sem ætlað var. Jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar eiga að vera tilbúin 2012 og nýr vegur í Gufudalssveit og Þorskafirði væntalega árinu fyrr. Þá mun vesturleiðin styttast í 404 kílómetra. Þetta kom fram í erindi Kristjáns L. Möller samgönguráðherra á þingi Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrr í mánuðinum.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31