A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
10.01.2017 - 20:45 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

Vestur-ísfirskur meirihluti í stjórnarforystu

Formennirnir í Gerðarsafni í Kópavogi. F.v.: Óttarr Proppe, Bjarni Benediktsson og Benedikt Jóhannesson. Ljósm.: Mbl.
Formennirnir í Gerðarsafni í Kópavogi. F.v.: Óttarr Proppe, Bjarni Benediktsson og Benedikt Jóhannesson. Ljósm.: Mbl.
Ný ríkisstjórn er að verða til á Íslandi en það er stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Hinir ýmsu vitringar í stjórnmálum og greiningardeildir keppast nú við að dásama eða rífa niður hinn nýja stjórnarsáttmála allt eftir því í hvaða sporum menn standa.

Ein er sú greining sem farið hefur fram hjá  -Vestfirska forlaginu-  og er sú að tveir af þremur flokksformönnunum eru með sterkar vestur-ísfirskar tengingar sem trúlega munu reynast þeim farsælar í ráðherrastörfum.

Óttarr Proppe, formaður Bjartrar framtíðar, á sterkar rætur ættar sinnar á Þingeyri og Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, er tengdasonur Önundarfjarðar.


« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31