A A A
  • 1947 - Hafsteinn Aðalsteinsson
  • 1952 - Einar Bjarnason
29.03.2016 - 11:25 | skutull.is

Vestfjarðatíðindi komin út

Vestfjarðatíðindi eru komin út á ný. Páskablaðið, 1. hefti 2016, er gefið út sem vefrit. Vestfjarðatíðindi eru málgagn Vestfirska forlagsins undir ritstjórn Hallgríms Sveinssonar forleggjara í Dýrafirði. Hann segir vefritið ætlað öllum þeim er unna Vestfjörðum á einhvern hátt. ,,Því er ætlað að kynna mannlíf og sögu kynslóðanna á þessum hluta landsins, sem sumir telja óbyggilegan. Er það sams konar efni og Vestfirska forlagið hefur birt í útgáfubókum sínum og ritum, sem nú eru komin á fjórða hundrað talsins. Auk þess fjallar vefritið um ýmis mál sem eru efst á baugi í þjóðfélaginu. Sumt af efni þess hefur áður birst á Þingeyrarvefnum," segir í kynningu frá útgefanda. Vestfjarðatíðindi koma fram á sínum eigin forsendum og eru engum háð. Umbrot blaðsins annast Nína Ivanova.

Blaðið má sjá  með því að smella hér.
« Mars »
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31