A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
24.09.2012 - 16:05 | BIB

Vestfjarðatíðindi komin út

Samstarfsaðilarnir í Leturprenti þeir Rögnvaldur Bjarnason og Burkni Aðalsteinsson.
Samstarfsaðilarnir í Leturprenti þeir Rögnvaldur Bjarnason og Burkni Aðalsteinsson.
« 1 af 6 »
 

Vestfirska forlagið á Þingeyri hefur endurvakið útgáfu á málgagni forlagsins sem út kom fyrir nokkrum árum undir nafninu Vestfjarðatíðindi. 1. tölublað ársins 2012 er komið út og er í dreifingu þessa dagana sem nær um alla Vestfirði og víðar um land, alls í rúmlega 13.000 eintökum.

 

Í Vestfjarðatíðindunum nú er gerð grein fyrir útgáfu Vestfirska forlagsins það sem af er árs 2012, sem  eru orðnar 9 bækur. Verða þær rúmlega helmingi fleiri fyri lok ársins. Þá er kynnt -Mannlífs- og menningarbrú Vestfirðinga og vina heima og heiman- 1. hluti. 

 

Ritstjóri er Björn Ingi Bjarnason frá Fateyri og ábyrgðarmaður er Hallgrímur Sveinsson á Þingeyri. Samstarfsaðili við útgáfuna er Leturprent í Reykjavík þar sem ráða ríkjum þeir Rögnvaldur Bjarnason frá Patreksfirði og Burkni Aðalsteinsson sem er tengdasonur Bíldudals.

  
 

Smella á þessa slóð: http://www.vestfirska.is/attachments/article/118/Vestfjardatidindi2012.pdf

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30