A A A
  • 1999 - Birkir Freyr Konráðsson
17.12.2015 - 20:10 | Hallgrímur Sveinsson

Vestfirskur viljastyrkur, einbeitni og þrjóska!

Komið í mark í Western State, 100 mílna hlaupi í Kaliforníu.
Komið í mark í Western State, 100 mílna hlaupi í Kaliforníu.

Alveg eru þeir makalausir þessir blessuðu  Vestfirðingar. Sjáið til dæmis ofurhlauparann hann Gunnlaug Júlíusson frá Móbergi á Rauðasandi.

Í bók sinni, Að sigra sjálfan sig (sem Vestfirska forlagið gaf út) , segir hann frá því að hann hafi byrjað sinn hlaupaferil 42 ára gamall, vel yfir 90 kíló að þyngd, reykti eins og strompur og skvetti í sig brennivíni öðru hvoru.

Fyrir tilviljun byrjaði hann að æfa hlaup og er nú í hópi þekktustu langhlaupara í heimi hér. Fyrir þann tíma datt honum síst í hug að hann ætti eftir að leggja fyrir sig  íþróttir að ekki sé nú talað um langhlaup og verða afreksmaður á heimsmælikvarða. Gunnlaugur segir að baráttan að því marki hafi ekki alltaf verið auðveld. Bætir svo við að fáir sigrar séu sætari en þeir sem maður vinnur yfir sjálfum sér. 

« Febrúar »
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28