Vestfirsku þjóðsögurnar söluhæst hjá Vestfirska forlaginu
Mikil eftirspurn er eftir öðrum bókum forlagsins. Má þar nefna bækur eins og Húsið Ljósbrot frá Ísafirði, eftir Hörpu Jónsdóttur, en hún er í bókaflokknum Litlu bækurnar, Bær við árnið kenndur, eftir Jón Þór Benediktsson að ógleymdri Melódíum minninganna eftir Hafliða Magnússon og frá Bjargtöngum að Djúpi sem orðinn er klassískur bókaflokkur fyrir Vestfirðinga og aðra sem áhuga hafa á Vestfjörðum.
Þess skal getið, að tvær bækur Vestfirska forlagsins hafa verið endurprentaðar að þessu sinni. Frá því að stafræn prentun kom til sögunnar, er hægt að endurprenta bók á allt að einum sólarhring. Það gerðist um daginn með bókina Vaskir menn eftir Guðmund Guðna Guðmundsson. Var það Prentsmiðjan Leturprent í Reykjavík sem stóð svo vasklega að verki.