A A A
24.02.2017 - 14:33 | Vestfirska forlagið,Blaðið - Vestfirðir,Björn Ingi Bjarnason

Vestfirska vísnahornið - "Höldum áfengi til Haga“

Teitur Björn Einarsson, alþingismaður, frá Flateyri.
Teitur Björn Einarsson, alþingismaður, frá Flateyri.
« 1 af 2 »

Áfengisfrumvarpið er farið að vekja hörð viðbrögð í þjóðfélaginu.
Má þar nefna Landlæknisembættið og hina eitilhörðu Akademíu á Þingeyri.

Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn lætur sitt ekki eftir liggja í orðsendingu til blaðsins Vestfirðir:
Það er ekki einleikið hvað áfengisauðvaldið getur dregið unga og einfalda dreifbýlisþingmenn á asnaeyrunum.
Í fyrra Vilhjálm Árnason, Skagfirðing og nú Teit Björn Einarsson, Önfirðing.

Ættargöfgi hrakar hér.
Hægt er það að sanna.
Teitur Einars fremstur fer
í flaumi drykkjumanna.

Aldrei féll þó faðirinn
í for svo lágt.
Ósköp hlýtur ættlerinn
að eiga bágt.

Georg Jón Jónsson, bóndi á Kjörseyri í Hrútafirði bendir á annað sjónarhorn og svo stuðning Haga við málið:

Það tókst vel hjá ungliðum á Alþingi með brennivínsfrumvarpið. Það yfirtók alla umræðu um leiðinleg mál, eins og skýrslur sem búið er aðsitja svo lengi á að það er komin vond lykt af þeim, sjómannaverkfall hvarf í skuggann í bili, vandi heilbrigðiskerfisins og fleira var minna rætt en sú þjóðarnauðsyn að koma vín og bjór í matvöruverslanir.

Forstjóri Haga lofaði þetta framtak strax.

Finnur Árnason fagnaði.
Ef frumvarpið yrði að lögum
loks yrði gert það sem gagnaði
gróða og vexti í Högum.

Snillingurinn Þórarinn Eldjárn samdi máltæki fyrir Alþingi sem hljóð- ar svo „Höldum áfengi til Haga"


Blaðið Vestfirðir 23. febrúar 2017.

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30