A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
17.06.2016 - 18:24 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

Vestfirska forlagið vökvar víða upprunaþrá

Vestfirsk menningarstund að Ránargrund á Eyrarbakka. F.v.: Björn Ingi Bjarnason og Ásgeir Ragnarsson.
Vestfirsk menningarstund að Ránargrund á Eyrarbakka. F.v.: Björn Ingi Bjarnason og Ásgeir Ragnarsson.
« 1 af 2 »

Vestfirska forlagið hefur staðið að metnaðarfullri bókaútgáfu í nær fjórðung aldar og gefið út rúmlega 300 titla.

 

Bækurnar hafa notið vinsælda og virðingar á heimaslóð vestra og ekki síður meðal hinna fjölmörgu brottfluttu Vestfirðinga sem dreifast víða um landið.

 

Einn þeirra er Önfirðingurinn af Ingjaldssandi , Ásgeir Ragnarsson  sem býr ásamt eiginkonu sinni, Halldóru Þórisdóttur  á Selfossi.

Ásgeir og Halldóra litu við að Ránargrund á Eyrarbakka í þjóðhátíðarheimsókn en þar má segja að sé sendiráð Vestfirska forlagsins á Suðurlandsundirlendi.

Ásgeir er mjög vel að sér um vestfirskan fróðleik og menningarsögu. Ýmislegt var rifjað upp og í tilefni 17. júní, fæðingardags Jóns Sigurðssonar, voru sérstaklega rifjaðar upp rætur hans til Holtspresta í Önundarfirði.  
   

Ásgeir og frú voru kvödd með virktum við lok heimsóknar og fékk hann vestfirskan sögu- og menningarglaðning sem var ein af bókum Vestfirska forlagsins í flokknum vinsæla  -Frá Bjargtöngum að Djúpi-

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30