A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
« 1 af 2 »

Vestfirska forlagið að Brekku á Þingeyri og Sunnlenska fréttablaðið bjóða til verðlaunakrossgátu í minningu Hafliða Magnússonar. Krossgátan er eftir Hafliða sem samdi krossgátur fyrir Sunnlenska fréttablaðið í áratug. Verðlaunakrossgátan er í Sunnlenska fréttablaðinu sem dreift verður á öll heimili og fyrirtæki á Suðurlandi á morgun, fimmtudaginn 29. nóv.

Verðlaunin eru allar bækur Vestfirska forlagsins árið 2012 og að auki hefti 1. – 6. af Basil fursta. Alls eru þetta 17 verðlaun og skal skila leystum krossgátum til Sunnlenska fréttablaðsins að Austurvegi 22 á Selfossi fyrir 6. desember nk.

Hafliði Magnússon lést 25. júní 2011 en hann var alla tíð einn traustasti garpurinn í áhöfn Vestfirska forlagsins. 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31