28.11.2012 - 23:03 | BIB
Vestfirska forlagið minnist Hafliða Magnússonar með Sunnlendingum
Vestfirska
forlagið að Brekku á Þingeyri og Sunnlenska fréttablaðið bjóða til
verðlaunakrossgátu í minningu Hafliða Magnússonar. Krossgátan er eftir Hafliða
sem samdi krossgátur fyrir Sunnlenska fréttablaðið í áratug. Verðlaunakrossgátan er í Sunnlenska fréttablaðinu sem dreift verður á öll heimili og fyrirtæki á Suðurlandi á morgun, fimmtudaginn 29. nóv.
Verðlaunin eru
allar bækur Vestfirska forlagsins árið 2012 og að auki hefti 1. – 6. af Basil
fursta. Alls eru þetta 17 verðlaun og skal skila leystum krossgátum til
Sunnlenska fréttablaðsins að Austurvegi 22 á Selfossi fyrir 6. desember nk.
Hafliði Magnússon lést 25. júní 2011 en hann var alla tíð einn traustasti garpurinn í áhöfn Vestfirska forlagsins.