A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
13.06.2015 - 07:00 | BIB,Morgunblaðið

Vestfirsk þorp í bókmenntum

Edinborgarhúsið á Ísafirði sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.
Edinborgarhúsið á Ísafirði sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.

Bókmenntadagskráin Vestanvindar í Edinborg á Ísafirði

Hin árlega bókmenntadagskrá Vestanvindar verður kl. 17 á morgun, sunnudaginn 14. júní 2015 í Edinborg menningarmiðstöð á Ísafirði.

Friðrika Benónýsdóttir bókmenntarýnir heldur erindið Hafði lagði þennan veg, sem fjallar um birtingarmyndir hins vestfirska þorps í íslenskum bókmenntum. Friðrika beinir sjónum sínum að rithöfundunum Eiríki Guðmundssyni og Eiríki Erni Norðdahl og verkum þeirra. Báðir hafa búið fyrir vestan, Bolungarvík var heimabær Eiríks Guðmundssonar í æsku og bók hans 1983 lýsir horfnum þorpsanda. Eiríkur Örn bjó lengst af á Ísafirði, þar sem hann skrifaði Illsku.

 

Morgunblaðið laugardagurinn 13. júní 2015

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31