10.11.2009 - 22:45 |
Vestfirsk bókakynning á Selfossi
Sunnlendingar við Orkusteininn hjá sumarbústað Hallgríms á Brekku í Dýrafirði. F.v.: Ásmundur Sigurðsson, Einar Valur Oddsson, Gunnar Marel Friðþjófsson, Hlynur Gylfason, Einar Loftur Högnason, Hallgrímur Sveinsson, Hafliði Magnússon og Jóhann Páll Helgason sem situr á Orkusteininum og innbyrðir orkuhleðslu.
Ólafur Helgi og Hafliði munu lesa upp úr bókum sínum á vestfirskri bókakynningu sem haldin verður í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi föstudaginn 13. nóvember n.k. kl. 20:30 Þar munu einnig koma fram og flytja létta tónlist; Vestfirðingarnir Pétur Bjarnason frá Bíldudal og Ólafur Sæmundsson frá Patreksfirði. Öll lögin sem leikin verða og sungin eru við texta Hafliða Magnússonar en hann verður að teljast einn af fjölhæfustu alþýðulistamönnum þessa lands.
Sérstakur gestur á vestfirsku bókakynningunni verður Hallgrímur Sveinsson á Þingeyri, hinn dugmikli framkvæmdsstjóri Vestfirska forlagsins. Fangaverðir og Hrútavinir á Suðurlandi fóru skemmti- og menningarferð um Vestfirði í sumar og nutu gestrisni og leiðsagnar Hallgríms á Þingeyri og í Dýrafirði.