03.12.2012 - 06:29 | BIB
Vestfirsk Bókamessa á Cafe Catalina 4. des. kl. 20
Bókamessa Vestfirska forlagsins á Þingeyri verður á Cafe Catalina í Kópavogi þriðjudaginn 4. des. kl. 20.
Þar verða kynntar og lesið úr þessum bókum:
Reynir Ingibjartsson með ævisögu Kristínar Dahlstedt veitingakonu í Fjallkonunni sem fædd var í Dýrafirði, Lárus Jóhannsson með Andvaka, lífshlaup og ljóð Tómasar Guðmundssonar Geirdælings hins víðförla, Guðbjörg Hlíf Pálsdóttir með barnabækurnar Hlunkarnir og Klubbarnir, Frá Bjargtöngum að Djúpi kynna; Bjarni Guðmundsson, Emil R. Hjartarson, og Kristinn Snæland og Lýður Árnason kynnir bók sína Svartir túlípanar.