A A A
  • 1981 - Brynhildur Elín Kristjánsdóttir
  • 1995 - Alexander Almar Finnbogason
  • 1996 - Margrét Unnur Borgarsdóttir
« 1 af 2 »
Verkalýðsfélag Vestfirðinga og önnur verkalýðsfélög á landbyggðinni innan Starfsgreinasambands Íslands hafa gert samkomulag við atvinnurekendur um að fresta fyrirhuguðum verkföllum sem áttu að verða fimmtudag og föstudag í þessar viku. Verkfallsaðgerðum er frestað um sex daga, þar sem samningaviðræður komust á skrið á fundum samningsaðila í dag.

Það er mat samninganefndar Starfsgreinasambandsins að gefinn skuli tími til að reyna til þrautar að ná samningum, án verkfalla. Kröfugerð Starfsgreinasambandsins er sem fyrr grundvöllur áframhaldandi viðræðna, segir í tilkynningu 
á vef SGS.

 Reiknað er með að samningar verkalýðsfélaganna innan SGS séu á sömu nótum og drög að samkomulagi sem birt var í gærkvöld á vegum Flóafélaganna og VR og við sögðum frá á Skutli í gærkvöld.

Verkföllum er því frestað sem hér segir: Verkfalli 28. og 29. maí er frestað til 3. og 4. júní. Ótímabundnu verkfalli 6. júní er frestað til 12. júní.
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31