A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
Dýrfirðingar á Bókamessunni á Cafe Catalina
Dýrfirðingar á Bókamessunni á Cafe Catalina
« 1 af 12 »

Vel heppnuð Bókamessa á Cafe Catalina þann  4. des.  2012

Þar voru kynntar og lesið úr þessum bókum:

Reynir Ingibjartsson með ævisögu Kristínar Dahlstedt veitingakonu í Fjallkonunni sem fædd var í Dýrafirði, Lárus Jóhannsson með  Andvaka, lífshlaup og ljóð Tómasar Guðmundssonar Geirdælings hins víðförla, Guðbjörg Hlíf Pálsdóttir með barnabækurnar Hlunkarnir og Klubbarnir,  Frá Bjargtöngum að Djúpi kynntu; Bjarni Guðmundsson, Emil R. Hjartarson, og Kristinn Snæland. Lýður Árnason kynnti bók sína Svartir túlípanar.

 

Björn Ingi Bjarnason var kynnir og stjórnaði samkomunni.

 

Emil R. Hjartarson skrifaði á Facebook um Bókamessunar:

 

Var á vestfirskri bókamessu í Catalínu ásamt einvala liði t.d. lækninum og rithöfundinum Lýð og frænda mínu Kidda Snæland fyrrum leigubílstjóra og Sveitarstjóra Flateyrarhrepps að ógleymdum Guðvarði sem hefur skráð mjög athyglisverðar endurminningar úr bernsku á Flateyri og birtast í einni af forlagsbókum "Vestfirska" Frá Bjargtöngum að Djúpi.

Hallgrímur Sveinsson, fyrrverandi skólastjóri á Þingeyri og núna "Léttadrengur og starfsmaður á hlaði" á Brekku í Þingeyrarhreppi hefur unnið afrek með allri sinni merkilegu bókaútgáfu.

 

 

Hafið "Vestfirska" í huga þegar þið veljið bækur til að eignast eða gefa.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30