16.07.2016 - 20:49 | Vestfirska forlagið,Ólafur V. Þórðarson
Veiðiskýrsla úr Hafnarfirði um gang veiða í Dýrafirði í júlí 2016
Þar sem búið er að stöðva strandveiðar á svæði A í júlí mánuði er rétt að senda yfirlit yfir afla þeirra báta sem stunduðu þær veiðar í júlí:
Bibbi Jóns 3527 kg í 6 sjóferðum
Hulda 3607 kg í 6 sjóferðum
Imba 3665 kg i 6 sjóferðum.
Þeir bátar sem eru með kvóta og róið hafa fram að þessu í mánuðinum, síðasta löndun 11. júlí:
Pálmi 2938 kg í 2 sjóferðum, landaði síðast 7. júlí
Rakel 2400 kg í 4 sjóferðum, landaði síðast 7. júlí
Bára 1880 kg í 1 sjóferð, landaði síðast 7. júlí
Dýrfirðingur 1584 kg í 1 sjóferð landaði síðast 6. júlí
Dragnótabáturinn Egill hefur landað 71345 kg í 6 sjóferðum síðasta löndun 11. júlí.
Ólafur V. Þórðarson tíðindamaður í Hafnarfirði