A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
27.01.2017 - 09:13 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Veiðimenn í lífsháska: - Lentu tvisvar í snjóflóði í sjó fram sömu nóttina!

Tvíburabræðurnir Guðmundur Stefán og Þorlákur Hinrik Bjarnason (Hrefnu-Láki). Ljósm. Björn Pálsson 1907.
Tvíburabræðurnir Guðmundur Stefán og Þorlákur Hinrik Bjarnason (Hrefnu-Láki). Ljósm. Björn Pálsson 1907.

Verbúðirnar innan við Arnarneshamar heita Hafnir eins og fram kemur hér að néðan.

Í gærmorgun var lesin í akademíunni á Þingeyri dramatísk, sönn frásögn eftir Böðvar frá Hnífsdal. Nefnist hún Veiðimenn í lífsháska og birtist í 3. bindi Frá Bjargtöngum að Djúpi. Fyrst birtist hún í Lesbók Mbl. 1942.

Þar segir frá bræðrunum Guðmundi Stefáni og Þorláki H. Guðmundssyni, Hrefnu –Láka, frá Súðavík, sem fóru til tófuveiða á Súðavíkurhlíð morgun einn veturinn 1895. Lentu þeir í svakalegum mannraunum.

Tvö snjóflóð báru þá í sitt hvort skiptið út á sjó. Þar hefðu sennilega fáir orðið til frásagnar. Þeir bræður hljóta að hafa verið afburða hraustmenni að lifa slíkar svaðilfarir af. Vermenn sem lágu við í áðurnefndum Höfnum björguðu svo loks lífi þeirra.

Umrædd frásögn mun birtast aftur í væntanlegri bók sem mun bera nafnið Vestfirðingar til sjós og lands  


« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31