Vegna alþingiskosninga 29. október 2016
Kjörfundur vegna alþingiskosninga verður haldinn þann 29. október 2016. Kjörfundur hefst kl. 09 í öllum kjördeildum og stendur til kl. 21 í 1.-3. kjördeild en til kl. 20:00 í 4.-6. kjördeild.
Kosið verður á eftirtöldum stöðum:
1.-3. kjördeild í Menntaskólanum á Ísafirði
4. kjördeild í Grunnskólanum á Suðureyri
5. kjördeild í Grunnskólanum á Flateyri
6. kjördeild í Félagsheimilinu á Þingeyri
Sérstök athygli er vakin á því að kjörfundi lýkur kl. 21 á Ísafirði en ekki kl. 22 eins og verið hefur.
Kjörskrá liggur frammi til kjördags á skrifstofu Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1 Ísafirði.
Einnig geta kjósendur kannað hvar þeir eru á kjörskrá á síðunni www.kosning.is
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í Menntaskólanum á Ísafirði.
Símar yfirkjörstjórnar á kjördag eru 450-4406 og 450-4407.
Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar
Hildur Halldórsdóttir formaður
Aðalbjörg Sigurðardóttir
Björn Davíðsson