A A A
  • 1981 - Brynhildur Elín Kristjánsdóttir
  • 1995 - Alexander Almar Finnbogason
  • 1996 - Margrét Unnur Borgarsdóttir
01.01.2018 - 10:33 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Vegir Vestfirska forlagsins liggja víða

F.v.: Ari Björn THorarensen, tengdasonur Dýrafjarðar og Björn Ingi Bjarnason, menningarfulltrúi Vestfirska forlagsins.
F.v.: Ari Björn THorarensen, tengdasonur Dýrafjarðar og Björn Ingi Bjarnason, menningarfulltrúi Vestfirska forlagsins.
« 1 af 3 »

Afmælisbarn nýársdagsins á Litla-Hrauni er Eyrbekkingurinn  Ari Björn Thorarensen fangvörður til áratuga og aðstoðarvarðstjóri í Húsi-3.

Eiginkona Ara Björns  er Ingunn Gunnarsdóttir sem er af traustum vestfirskum „ Wendelættum“  verslunarmanna á Þingeyri við Dýrafjörð.

Hið alsjáandi auga Vestfirska forlagsins á Þingeyri er með þetta alveg á hreinu og í tilefni dagsins fékk því „tengdasonur Dýrafjarðar“ mannlífs- og menningargjöf frá Vestfirska forlaginu.

Ljóðasetur Litla-Hrauns orti:
Dýrafjarðar dömu fann
drengurinn af Bakka.
Verðleika og vilja þann
Vestfirska vill þakka.

 

Gleðilegt nýtt ár.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31