01.01.2018 - 10:33 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
Vegir Vestfirska forlagsins liggja víða
Afmælisbarn nýársdagsins á Litla-Hrauni er Eyrbekkingurinn Ari Björn Thorarensen fangvörður til áratuga og aðstoðarvarðstjóri í Húsi-3.
Eiginkona Ara Björns er Ingunn Gunnarsdóttir sem er af traustum vestfirskum „ Wendelættum“ verslunarmanna á Þingeyri við Dýrafjörð.
Hið alsjáandi auga Vestfirska forlagsins á Þingeyri er með þetta alveg á hreinu og í tilefni dagsins fékk því „tengdasonur Dýrafjarðar“ mannlífs- og menningargjöf frá Vestfirska forlaginu.
Ljóðasetur Litla-Hrauns orti:
Dýrafjarðar dömu fann
drengurinn af Bakka.
Verðleika og vilja þann
Vestfirska vill þakka.
Gleðilegt nýtt ár.