14.01.2018 - 17:29 | Vestfirska forlagið,Jónshús í Kaupmannahöfn,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
		
	Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn árið 2018
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 4. hæð hússins almanaksárið 2018. 
Nefndinni bárust að þessu sinni umsóknir um dvöl til að sinna 31 verkefni. Úthlutað var dvalartíma til eftirtalinna fræðimanna:  
- Auður Hauksdóttir, til að vinna verkefni um danska tungu og menningu á Íslandi í sögulegu ljósi;
 - Bragi Guðmundsson, til að vinna verkefni um námsgreinina sögu og grenndaraðferð í skólastarfi.
 - Brynja Björnsdóttir, til að vinna verkefni um þróun dansk-íslenskra laga um fæðingar- og ríksborgararétt og veitingu ríkisborgararéttar frá 19. öld til 1944;
 - Guðrún Tryggvadóttir, til að vinna verkefni sem ber heitið „Lífsverk 13 kirkjur Á.J.S.“
 - Gunnar Þór Bjarnason, til að vinna verkefni um fullveldi Íslands 1918;
 - Hafdís H. Ólafsdóttir, til að vinna að undirbúningi handbókar um lagasnið þingskjala og lagahefð;
 - Helga Gottfreðsdóttir, til að vinna verkefni sem ber heitið „Prenatal diagnosis of Down's syndrome in the Nordic countries: A qualitative study of prospective parents' experiences and decision-making“
 - Hilmar J. Malmquist, til að vinna verkefni um sléttbaka frá Íslandi í fórum Dana;
 - Ingi Bogi Bogason til að vinna verkefni um þróun iðn- og tæknimenntunar í Danmörku;
 - Katrín Ólafsdóttir, til að vinna verkefni sem ber heitið „The gender wage gap over the economic cycle: A Nordic Comparison“
 - Ólafur Þór Ævarsson, til að vinna verkefni um streitu á Norðurlöndum;
 - Ævar Harðarson, til að vinna verkefni um Íbúasamráð; reynslu og þekkingu af íbúasamráði við mótun nærumhverfis.
 
Í úthlutunarnefndinni eiga sæti:
dr. Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem er formaður nefndarinnar, 
dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, 
og Drífa Hjartardóttir, fyrrverandi alþingismaður.
Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, forstöðumaður skrifstofu forseta Alþingis.


		
		
















