A A A
  • 1954 - Fríður Jónsdóttir
  • 1957 - Sigurður Rúnar Jónsson
29.09.2008 - 23:52 | visir.is

Úrskurðurinn sagður áfall

Horft ofan í Þorskafjörð. Mynd: visir.is
Horft ofan í Þorskafjörð. Mynd: visir.is
Dómsúrskurður sem kveðinn var upp á föstudag, þar sem nýrri veglínu Vestfjarðavegar um þrjá firði var hafnað, er feiknarlegt áfall, að mati forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar, sem hvetur til áfrýjunar. Talsmaður landeigenda mælist hins vegar til þess að hætt verði við vegagerðina. Vegagerðin hugðist bjóða verkið út um næstu áramót en þetta er lengsti og erfiðasti kaflinn á leiðinni milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur sem eftir er að byggja upp og malbika. Eigendur eyðijarða við utanverðan Þorskafjörð með stuðningi náttúruverndarsamtaka hafa barist hart gegn nýrri veglínu, einkum með þeim rökum að verja þurfi Teigsskóg, mesta skóglendi Vestfjarða.

Þáverandi umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, féllst á hina umdeildu veglínu en nú hefur Héraðsdómur Reykjavíkur fellt úr gildi hluta úrskurðar ráðherrans, þó ekki þann hluta sem snýr að Teigsskógi. Dómurinn telur að ráðherrann hafi ekki með fullnægjandi hætti rannsakað umhverfisáhrif þverunar á lífríki í fjörðunum og þar með brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar.

 

Gunnlaugur Pétursson, einn kærenda, kveðst hæstánægður með þennan áfangasigur, og hvetur til þess að hætt verði við vegagerðina enda valdi hún miklum náttúruspjöllum. Velja eigi annan kost, annaðhvort að leggja veg yfir Hjallaháls eða bora göng undir hálsinn. Úlfar Thoroddssen, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, segir úrskurð Héraðsdóms feiknarlegt áfall.

Kveðst Úlfar eiga ákaflega bágt með að trúa því að umhverfisráðherra og ráðuneytismönnum hafi yfirsést svo viðamikið atriði, sem dómurinn telur, og hvetur Vegagerðina til þess að láta á það reyna fyrir Hæstarétti. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir ljóst að þessi úrskurður muni örugglega valda töfum en Vegagerðin skoði nú hvort áfrýjað verði til Hæstaréttar.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31