08.02.2016 - 08:12 | Hallgrímur Sveinsson
Úr myndaalbúminu: - Hér eru menn að kútta!
Þessa mynd tók Bjarni Guðmundsson frá Brekku, eftir því sem við best vitum. Hún mun tekin fyrir 40 – 50 árum. Hér eru menn í aðgerð, að kútta eða öðru nafni slægja, í gömlu mjölskemmunni hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga sællar minningar.
Á myndinni eru Guðmundur Friðgeir Magnússon, Gunnar Þorberg Einarsson og Þorlákur Snæbjörnsson, en fjórða manninn þekkjum við ekki svo gjörla.