A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
27.01.2016 - 20:23 | Hallgrímur Sveinsson

Úr myndaalbúminu: - Bridgefélagið Gosi á Þingeyri

   Meðf. mynd var tekin svona á síðustu árunum sem Gosamenn tóku í spil. Þá voru Ísfirðingar oft gestir hjá þeim, ásamt jafnvel Súgfirðingum og fleirum. Fremst á myndinni eru þeir makkerarnir og frændurnir Gunnlaugur Magnússon og Friðfinnur Sigurðsson. Ekki er að sjá annað en menn séu nokkuð kátir þegar myndinni var smellt af. Ljósm. H. S.

Bridgefélagið Gosi á Þingeyri var lengi vel elsta starfandi bridgefélag á Vestfjörðum eftir því sem best er vitað, stofnað 18. marz 1958. Það var líka þekktasta félagið af því tagi í Vestfirsku Ölpunum, enda ekki vitað um annan opinberan bridgeklúbb á þeim slóðum. Nú heyrir Gosi sögunni til, í bili alla vega. Hvað sem síðar verður. Það eru margir sem sjá eftir honum.

   Í Gosa var starfað af miklu fjöri allt fram á síðustu ár. Seinast var spilað í nokkur ár í kaffisal nýja sláturhússins, sem kallað var, niður á Odda hjá Finna og Sirrý. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30