A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
02.09.2015 - 20:49 | Hallgrímur Sveinsson

Úr daglega lífinu: - Skilur þú rafmagnsreikninginn þinn?

Rafmagnsreikningur fyrir notkun að Brekkugötu 48 á Þingeyri fyrir júní 2015. Ljósm.: H. S.
Rafmagnsreikningur fyrir notkun að Brekkugötu 48 á Þingeyri fyrir júní 2015. Ljósm.: H. S.

Yfirleitt borgar maður rafmagnsreikninginn sinn þegjandi og hljóðalaust. En sá dagur getur þó runnið upp að maður fer að spekúlera í því hvað maður sé að borga.

Skemmst er frá því að segja að undirritaður til dæmis hefur ekki gáfur til að skilja rafmagnsreikninginn sinn frá Orkubúi Vestfjarða. Ekki svona í fljótu bragði. Með yfirlegu og símtölum má eflaust komast til botns í þeim samsetningi.

Spurningin er bara þessi: Þarf þetta að vera svona flókið?

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30