12.06.2010 - 12:59 | JÓH
Upplýsingamiðstöðin og Koltra hafa opnað fyrir sumarið
Upplýsingamiðstöðin á Þingeyri og handverkshópurinn Koltra hafa opnað fyrir sumarið. Það verður opið alla sumarmánuðina; júní, júlí og ágúst, alla virka daga frá 10-18 og frá 11-18 um helgar. Síðasta sumar komu um 3500 manns í upplýsingamiðstöðina og handverkssalan í Koltru tvöfaldaðist frá árinu áður. Vonast er til að jafn vel gangi í sumar, ef ekki betur. Upplýsingamiðstöðin og Koltra eru til húsa á Hafnarstræti 7, í gamla Kaupfélaginu.